Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 38

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 38
koma sem mestu af annarri vinnu en fiskidrætti yfir á félaga sína. Marg- oft hafði hann Bjarni litlan skotið sér undan að sinna seglum og taka sína rórtörn, en hann Guðmundur Þórðarson, Ónei. Ég var eiginlega steinhissa á honum Ara Dagbjarti að líða þetta samsæri, en honum hafði víst heldur betur ofboðið ofur- kappið i Fiski-Gvendi, vildi síður en svo, að það ætti fyrir sér að liggja að sigla i höfn með menn, sem hefðu gert sig að aumingjum á vökum. Látum nú vera, að Fiski-Gvendur hefði ekki verið vakinn strax, en þetta, hver maður búinn að draga tugi fiska, sjálfsagt komin ein þrjú, fjögur hundruð á dekk. Nú, varla fórst mér að lá Gvendi, mátti muna eftir því, sem kom fyrir mig í fyrra í Straumavíkurforunum. Hafði ég ekki verið farinn að sjá ofsjónir, benti út á sjóinn og sagði, að þarna væri nú bara komið eitt skip af sömu tegund og hann hefði verið á hann Kólumbus, þegar hann fann Ame- riku? Og hafði ég ekki verið setztur á dekkið með fisk á milli fótanna og tekinn að tala við hann, vorkenna honum þessa meðferð, blessaðri al- saklausri skepnunni — félagar mínir orðið að taka mig og fara með mig í koju? Og þetta af því, að ég hafði fengið þá firru í höfuðið, sextán ára gamall, að keppa við afbrigða dráttarmann og mesta þrek- skrokk.. Ég leit til Markúsar. Hann var að hálsskera fisk og tók ekki eftir þvi, að ég var að horfa á hann. Og allt í einu brá ég lykkju af færinu um vað- beygjuna og gekk aftur eftir til Mó- rauða kallsins, sem ranghvolfdi þá upp á mig skyggnunum. „Nú fer ég og vek Gvend, hvað sem hver segir,“ sagði ég fastmæltur og hvessti augun á vin minn. Sá mórauði leit á mig ekki sérlega hýru auga. ,,Og hvers vegna — má ég spyrja?“ sagði hann. „Vegna þess, að þetta, sem þú hefur staðið fyrir, er orðið helvítis ranglæti. Hefði verið næg ráðning, 30 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ að Gvendur hefði verið vakinn, þeg- ar Litlan var búinn að draga tvo, þrjá fiska. Hann hefur engin störf vanrækt, þó að hann hafi verið iðinn við kolann, og ég skil varla í, að þú þiggir ekki premíuna af þeim drátt- um, sem hann dregur.“ Litli maðurinn dró annað augað í pung og pírði hinu á mig: , Jæja, sjáum til, Hvítur minn, þú ert bara ordinn grenjandi vondur af hreinni og skærri réttlætistilfinn- ingu. Verra gat það verið.“ Ari Dagbjartur hætti að skaka og rak upp á okkur stór augu, gátu orðið sérkennilega stór í honum augun: „A-æ,“ sagði hann. „Hann Guð- mundur okkar Þórdarson, þakka þér fyrir, Oddur minn. Ég vildi gjarnan, að honum brygdi ónotalega, en þetta er of langt gengið, — ég var alveg búinn að gleyma honum. Ég rauk af stað, hljóp eins og á víðum velli. „Hvern djöfulinn ertu að fara?“ gall í Litlunni. „Haltu þinum skítuga, skepnan þín!“ kallaði ég, brá báðum lófum á lúkarahlerann og sveiflaði mér ofan i stigann. Sko, þarna lá garpurinn, skrokk- urinn niður að mitti upp undan margþvældri og gauðskitinni sæng- inni, — lá upp í loft, gapti og hraut ógurlega, ekki sosum von hann heyrði til þeirra á bógnum. Og ég rauk ekki til og vakti kappann um- svifalaust. Ég gat sem sé ekki stillt mig um að virða hann fyrir mér: Nefið, þunnt og hátt, stóð út úr andlitinu eins og trjóna, dökkur gráýrður skegghýjungur á höku og vöngum, jarpt skegg á efri vör, með gráum ýrum, hálsinn mjór og sinaber, bolurinn rýr og svo holdlit- ill, að telja mátti ekki aðeins rifin, heldur líka nokkuð af æðum og sin- um, og þessir handleggir, sem dregið höfðu áreiðanlega mikið á annað hundrað þúsundir stærri og smærri fiska á veiðislóðunum við strendur landsins, allt sunnan úr Eyrar- bakkabuggt og norður á Skaga- grunn, og reynzt við hvers konar störf á sjó og landi ótrúlega traustir og seigir, — þeir voru líkastir reka- viðarrenglum, barkflettum og stórkvistóttum.. En ekki hafði ég nú rokið frá færinu til að skoða þennan furðulega líkama, hertan og þrautþjálfaðan i íþróttum harðrar lífsbaráttu, þó að vissulega væri hann sjónarverður. Og svo upphóf ég þá mína raust, tónaði með rödd heiðursklerksins á Fagureyri: „Gve-e-end-ur! Þú, sem sefur svefni hins frægasta fiskadreps í tveimur landsfjórðungum, gæt nú þess, að þú sofir ekki lengur þínum illviljuðum keppinaut til óforþéntr- ar gleði! Gve-end-ur, vakna þú, því að fiskar hafsins blaka nú uggum og spretta sporði af ánægju yfir, að þinn háskalegi og heillandi öngull skuli ekki glitra í sólblikuðum sævi!“ Svo rak þá Fiski-Gvendur upp á mig augun, og það var sem sæi inn stirðnaðar sjónir. En allt í einu brá þar fyrir glampa. „Segi, segi það bara já!“ hvísluðu þunnar og svo sem skrælnaðar varir. Og síðan var endurtekið háum og hásum rómi: „Ha, hva, ha, hva? Ég, ég segi það bara hreint ekki, að.“ Augun hvörfluðu sitt á hvað. Ofan af þilfarinu bárust hvinir í vaðbeygjum og einnig skellir, sem vitnuðu um það, að nú var ekki lengur nein launung á því, sem fram fór. Það kom hræðslusvipur á teygða ásjónu hins mikla fiskabana — og þann hvíslaði slitrótt: „Ert þetta...þetta þú, Ossi minn — eða er þetta.... þetta ekkert, seg-segi það bara, já!“ ,Já, sérðu mig ekki, maður! Hef- urðu ekki heyrt til mín? Eg fór frá færinu til að vekja þig, allir í band-sjóðandi vitlausum göngufiski hérna vestan við Selnesið, komin þrjú, fjögur hundruð á dekk — og Litlan bandóð yfir því, að ég.“ Eg komst ekki lengra. Fiski-Gvendur lagði aftur augun og rak upp sársaukaþrungið hljóð, tók síðan viðbragð og hentist fram úr kojunni.... Ög nú snarsneri ég mér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.