Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Qupperneq 45
Brynjólfur Halldórsson, skipstjóri á b/v ögra, fulltrúi sjómanna. Brynjólfur er formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins
Ægis.
Sjómannadagur-
ínn í Reykjavík
38. sjómannadagurinn var hátíð-
legur haldinn sunnudaginn 1. júní
1975.
í Reykjavík hófust hátíðahöldin
kl. 08.00 með því að fánar voru
dregnir að húni á skipum í höfninni,
norðan andvari var, bjart og fagurt
veður.
Kl. 10.00 lék lúðrasveit Reykja-
víkur létt lög við Hrafnistu, en rétt
fyrir kl. 11.00 var vistfólki af Hrafn-
istu ekið til Sjómannamessu í Dóm-
kirkjunni.
Kl. 11.00 hófst sjómannamessa í
Dómkirkjunni. Biskupinn yfir Is-
landi, herra Sigurbjörn Einarsson
minntist þeirra sem drukknað hðfðu
frá síðasta sjómannadegi.
Fjölmenni var í kirkjunni, og var
athöfninni útvarpað, einsöngvari
var Hreinn Líndal og orgelleikari
Ragnar Björnsson. Á meðan at-
höfnin í kirkjunni fór fram, var
lagður blómsveigur á leiði óþekkta
sjómannsins í Fossvogskirkjugarði.
Kl. 13.00 hófust hátíðahöldin í
Nauthólsvík með því að lúðrasveit
Reykjavíkur lék létt lög og mynduð
var fánaborg með fánum stéttarfé-
laga sjómanna og islenska fánanum.
Strætisvagnar hófu þangað ferðir úr
Lækjargötu og frá Hlemmi.
Kl. 14.00 var hátíðin sett af
Antoni Nikulássyni sem einnig var
þulur dagsins síðar. Ávörp fluttu,
Gunnar Thoroddsen félagsmálaráð-
herra, í fjarveru sjávarútvegsráð-
herra f.h. ríkisstjórnarinnar, Ingólf-
ur Arnarson f.h. útgerðarmanna og
Brynjólfur Halldórsson, form. skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins Ægis
f.h. sjómanna.
Þá afhenti Pétur Sigurðsson form.
sjómannadagsráðs eftirtöldum sjó-
mönnum heiðursmerki Sjómanna-
dagsins Janusi Halldórssyni fram-
reiðslumanni, sem er einn af þremur
eftirlifandi stofnendum samtaka
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37