Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Síða 53
Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup:
Madurinn
Predikun á Sjómannadaginn 1975
Guðspjall dagsins: Lúkas 12,13—21
I.
Maður kom til Jesú og bað hann: Segðu bróður mín-
um að skiþta með sér arfi okkar.
Frá þessu er sagt fyrst í guðspjalli dagsins. Jesús
vísar manninum á bug og var þó ekki vanur að synja
um bón. Hann vill ekki hlutast í þetta mál. Hvers
vegna?
Hann gefur það óbeint í skyn: Hann varar við
ágirnd. Ágirnd hefur aldrei annað viðkvæði, þegar
hún krefst íhlutunar, en þetta: Segðu bróður mínum
að beygja sig, segðu hinum að láta undan. Eg vil fá
mitt og mitt er allt, sem ég get komizt yfir með réttu
eða röngu, illu eða góðu. Jesús hefur skilið, að þarna
var harka á ferð, sem léti ekki undan þótt hann skærist
í leik.
Nú deila bræður á Islandi um skipti á sameiginleg-
um afrakstri vinnu sinnar. Hvað mundi Jesús segja, ef
leitað væri til hans um úrskurð í þeirri deilu?
Ég læt ósagt, hvernig hann mundi líta á málavexti eða
hvort hann tæki að sér að skera úr. Kannski mundi
hann segja eins og forðum: Hver hefur sett mig til þess
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 45
gullið
að ákveða kaup og kjör? Hafið þið ekki nægilega
glögga viðmiðun um það, hvað er rétt í þeim sökum?
Til hvers er öll ykkar hagfræði og tölvísi, til hvers öll
þessi fyrirferðarmikla pólitík? Eða eruð þið að sóa
vitsmunum ykkar á skammsýn mið með velferð
landsins í veði? Ég get ekki hlustað á þá, sem alltaf
klifa á þessu: Segðu bróður mínum að slá af, láta
undan, gera eins og ég krefst, það er honum að kenna,
hvernig allt er, það er hann, sem alltaf er að seilast í
vasana mína, hann, sem þú ættir að hirta og beygja.
Jesús mundi kannski þurfa að segja þetta. Eða
mundi hann snúa sér undan hljóður af blygðun yfir
því, að bræður skuli vera að bítast og slást, að áhöfnin
á því fremur veika fleyi, sem nefnt er þjóðarskútan
íslenzka, skuli standa í áflogum út af aflanum, að það
skuli ekki vera liðin tíð, að beita þurfi örþrifaráðum til
þess að skera úr um kjaramál?
Hér er ekki staður né stund til þess að ræða þessa
deilu frekar. Jesús sagði: Verður er verkamaðurinn
launa sinna. Og hér í guðspjallinu segir hann: Gætið
þess að varast alla ágirnd.
Næsta almenn ummæli hvort tveggja. Segja þau
nokkuð að gagni?
Jesús skírskotar jafnan til samvizku einstaklingsins