Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 65

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 65
Óskar Jónasson, kafari og Júlíus Kr. Ólafsson á sjómannadaginn fyrir nokkrum árum. Óskar var í fjölda ára ríkiskafari á varðskipinu Ægi og þar sigldu þeir saman. Óskar sem nú er látinn var tengdafaðir Kristjáns heitins Júlíussonar, yfirloftskeytamanns, m.ö.o. börn þeirra vinanna Óskars og Júlíusar giftust. En það varð ekkert af þessu. Ég ilentist í vélinni. Eiginlega veit ég ekkert hvernig þetta gerðist. Ég þekkti Hjalta Jónsson ekkert þá, en Hjalti gerði stundum ýmsa hluti sem aðrir menn gerðu ekki, og hversvegna hann tók mig um borð veit ég ekki. Eg var á hinn bóginn viss um að þarna lægi mín leið. Við þessir ungu menn þóttumst skynja nýja tíma í þessum skipum, togurunum og vildum bók- staflega gera allt til þess að komast um borð í togara. Ég komst auðvitað fljótt að raun um það að það vantaði nú fleira en skipstjórana á þessi nýju skip. Það varð að hafa gott lið í vélarrúminu líka. Það var þarna danskur meist- ari, Petersen að nafni. Mesti ljúfl- ingur og af honum lærði ég mikið og aldrei fór ég á dekkið. Ég fór í land og hóf Járnsmíðanám hjá Guðjóni Jónssyni í Reykjavík var hjá honum rúm tvö ár. 1911 kom M.R. Jessen til landsins, sem vélskólakennari. Hin nýstofnaða véldeild við Stýri- mannaskólann starfaði ekki það ár, en Jessen hafði kvöldnámskeið í skólanum. Komu þrír á það, var ég einn af þeim. Haustið 1912 tók Vél- deildin til starfa, og var ég einn af þeim sex nemendum sem innrituð- ust. Ég lauk prófi í apríllokin 1913. Annað nám hef ég ekki stundað. Þó vil ég geta þess að Jessen var frábær kennari, og við höfðum nær ofurmannlegan áhuga á náminu. Ég tel því að við höfum í rauninni lært meira en menn almennt telja. Með þessu móti er ég ekki að reyna að ofmeta hlutina. Nú á dögum læra menn auðvitað miklu meira, en þetta sem þá var kennt, var vel kennt og kom að fullu gagni. Eignaðist part í togara Nú 4. maí árið 1913, fór ég svo á togarann Snorra goða, eigandi Kveldúlfur h.f. Var á honum um tveggja ára skeið. 1915 varð ég 1. vélstj. á togaranum Jarlinum frá f safirði, eða um eitt ár. 1916 var ég 1. vélstj. á Apríl og fleiri togurum, þar til þeir voru seldir úr landi 1917. 1918 fór ég 3. vélstj. á Sterling, var á honum framundir áramót. Var ráð- inn 1. vélstj. á togarann Vínland, sem keyptur var til landsins og kom í janúar 1919. Haustið 1920 fór ég af Vínlandinu, var þá ráðinn á togar- ann Baldur, sem átti að koma til landsins, en kom ekki fyrr en ári síðar. Meðan ég beið eftir Baldri, var ég tíma og tíma á ýmsum togurum. — En þú áttir í Baldri var það ekki? — Jú ég lagði 11.000 krónur í skipið þegar það var keypt. Mig minnir að það kostaði 300.000 krónur fullbúið á veiðar. Þetta var nú meira gert til þess að tryggja sér atvinnu, en það að maður ætti von á skjótfengnum gróða. Menn gerðu þetta í þá daga. Létu sparifé sitt gjarnan til þess að tryggja sér vinnu með því móti. — Fékkstu aurana aftur? — Mörgum árum síðar var toar- inn seldur fyrir þrefalt verð. Það var Gísli heitinn Jónsson, vélstjóri og alþingismaður sem keypti. Hann var þá með drift á Bíldudal. Við fengum því þrefalda upphæðina, en það var ekkert. Þetta fé var vaxta- laust allan tímann. Maður fékk að mig minnir eitt tonn af kolum um áramótin, venjulega, annað ekki. Það var árið 1943 sem við seldum. — Þú hefur ekki haft hug á frek- ari útgerð? — Mér stóð það til boða, en við vorum sammála um það hjónin að taka ekki neina áhættu, heldur reyna að lifa af því sem ég aflaði með vinnu minni og tel ég það hafa verið farsæla stefnu. Árásin á Súðina — Hvað tekur síðan við? A Baldri var ég til ársins 1926, að ég réðist á kolakranann (Hegrann), var ég við þann starfa í þrjú og hálft ár, eða til ársins 1930 í apríl að ég réðist 2. vélstj. á Súðina eign ríkis- sjóðs. í nóvember sama ár varð ég 1. vélstj. þar til síðla árs 1945, að ég fór 2. vélstj. m.a. Esju. Var ég þar um sex mánaða skeið. Fór aftur á Súð- ina, var þar til janúarloka 1947, er ég fór 1. vélstj. á varðskipið Ægi. Þar var ég svo þar til að ég bar SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.