Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Síða 72

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Síða 72
ingum og oft farin. Fundur Græn- lands frá Islandi seint á tíundu öld og síðar fundur Norður-Ameríku árið 1000, marka djúp spor í sigl- ingasögu forfeðra okkar. A sama tíma sögunnar sóttu líka menn héð- an frá íslandi í „austurveg“. Þeir sigldu inn í Eystrasalt, og þaðan eftir stórám Rússlands niður til Svartahafs, en þaðan út á Miðjarð- arhaf. Halldórs þáttur Snorrasonar greinir frá slíkum siglingum. Eftir að íslendingar ganga Noregskonungi á hönd, um 1264, og gera við hann Gamla Sáttmála, þá fer smám sam- an að draga úr siglingum íslendinga sjálfra, þar sem konungur skuldbatt sig til að sjá um siglingu nokkurra skipa til landsins árlega með vörur. Biskupsstólarnir svo og nokkrir ver- aldlegir höfðingjar, áttu þó haffær skip í nokkrar aldir eftir þetta. En svo fór að lokum að engin haffær skip voru lengur til í eigu ís- lenskra manna. Niðurfelling íslend- inga sjálfra á siglingum í eigin þágu með vörur til landsins, leiddi ekki aðeins af sér vöruskort í landinu, svo að hungur svarf að á stundum, heldur hafði þetta líka í för með sér andlega hrörnun þjóðarinnar og vantrú á eigin getu. Sú þjóð sem heldur að hægt sé að láta aðra þjóð annast fyrir sig þýð- ingarmestu störfin, hver svo sem þau eru, hún er á villigötum, og er dæmd til að missa sjálfstæði sitt, fyrr eða síðar ef hún sér ekki að sér í tíma. Um þetta vitnar okkar saga. Barátta íslensku brautryðjendanna fyrir endurheimt íslensks sjálfstæðis, sem háð var af Fjölnismönnum, Jóni Sigurðssyni og fleiri mætum mönn- um á nítjándu öldinni, hún beindist að uppbyggingu íslenskra atvinnu- vega. Hinn rökfasti foringi okkar Jón Sigurðsson, hann taldi eitt brýnasta verkefnið í sjálfstæðisbar- áttunni, að losa verslunina og sigl- ingarnar til landsins af erlendum klafa. Það er líka athyglisvert í þessu sambandi, að einn sá fyrsti sem endurvekur íslenskar siglingar að og frá landinu með vörur, er fjárhags- 64 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ legur stuðningsmaður forsetans í sjálfstæðisbaráttunni, Ásgeir Ás- geirsson á Isafirði. Án siglinga ís- lendinga sjálfra á haffærum skipum, frá og til landsins með vörur, gat sjálfstæði okkar þjóðar aldrei orðið nema nafnið tómt. Ef ekki hefði verið búið að stofna Eimskipafélag Islands fyrir fyrri heimsstyrjöldina árið 1914, þá hefðum við orðið harðara úti með vöruflutninga til landsins, heldur en við urðum. Is- lenskir farmenn og innlendur vöru- skipafloti eru þær sterku stoðir, sem órjúfanlega eru tengdar baráttu okkar fyrir stjórnmálalegu og efna- hagslegu sjálfstæði í þessu landi. Að svo er, hafa tvær heimsstyrjaldir sannað áþreifanlega. Islensk far- mannastétt hefur borið hróður landsins vítt um höf síðan íslenskar siglingar hófust að nýju. Hún hefur lika bjargað þjóðinni frá vöruskorti í tveimur heimsstyrjöldum. Þetta er vel mennt siglingastétt sem á að vera okkar þjóðarstolt. Sjómannsstarfið í þágu fiskveiða Norðmenn sem fluttu hingað til Islands í upphafi norræns land- náms, voru að stærsta hluta frá Vestur- og Suðvestur Noregi. Þessir menn voru því flestir vanir sjómenn, sem fluttu með sér út hingað þekk- ingu á fiskveiðum eins og þær voru stundaðar við ströndina og í fjörð- um Noregs. Mest mun fiskveiði á þeim tíma hafa verið stunduð með handfærum. Þó má nokkuð öruggt telja, að norðmenn hafi strax á landnámsöld verið farnir að veiða síld í lagnet, sem þá að líkindum hafa verið riðin úr togbandi eða máske líka hrosshári. I upphafi að Egilssögu Skallagrímssonar, á blaðsíðu 2, í útgáfu Guðna Jóns- sonar, segir þar sem rætt er um störf Skallagríms: „Hann fór ok oft um vetrum í síldfiski með lagnarskútu ok með honum húskarlar margir.“ Það ætti að liggja ljóst fyrir, að strax í upphafi landnáms, þurftu menn hér á íslandi að afla sjávar- fangs að mjög stórum hluta til að fullnægja fæðuþörfinni. Þekkingu á verkun harðfisks eða skreiðar, fluttu landnámsmennirnir með sér að heiman, harðfiskur var sú vara sem geyma mátti frá ári til árs. Frásagnir í islendingasögum geta líka um skreiðarflutninga og skreiðarhlaða. I Eyrbyggju er sagt frá skreiðar- geymslu innanhúss á stórbýlinu Fróðá. Þá er þess getið að Þóroddur bóndi drukknaði við flutning á skreið, utan af Nesi og inn til Fróðár. Þannig var það skreiðin, eða harðfiskurinn sem hjálpaði til að halda lífi í landsmönnum á mestu harðinda- og hallæristímum þjóðar- innar. Og þeir sem öfluðu þessara lífsnauðsynja svo þjóðinni tókst að þrauka af gegnum harðindin, en dó ekki út, voru íslensku sjómennirnir. Þeir sóttu sjó frá fjölda verstöðva, vetur, sumar, vor og haust, hringinn í kringum landið. Þeir sóttu sjó á áttæringum á vetrarvertíð, hér frá suður og vesturlandinu, en oft á minni bátum á öðrum árstímum, í öllum landshlutum. Skinnklæddir ýttu þeir fram úr brima vör út á opið vetrarhafið til að sækja fólkinu björg. Tóku svo stundum langan brimróður þegar aftur var komið að landi. Margir féllu í baráttunni við Ægi konung hafsins, en áfram var haldið og aldrei gefist upp. Þess- vegna lifa ennþá afkomendur fornu landnemanna í þessu landi. Þannig gekk það til gegnum aldirnar. Þegar aðrar þjóðir fóru að stunda fisk- veiðar á haffærum þilfarsskipum og sóttu hingað norður á okkar mið, þá héldu okkar sjómenn áfram að róa til fiskjar á áraskipum, vegna þess að þjóðin var svo fátæk, þó hún byggi við heimsins gjöfulustu fiskimið. Og orsökin til fátæktarinnar var sú, að landsfeðurnir höfðu afsalað sér rétt- inum til forsjár þjóðarinnar á síðari hluta þrettándu aldar. Sú þjóð sem verður að heyja baráttu við hafið til að lifa, hún verður að treysta á sjálfa sig og sjálfa sig eina. Hún má aldrei fela forsjá mála í hendur erlendum mönnum, eins og forfeður okkar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.