Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 89
Framhald a£ bls. 35
oft skuttogarar, eru á veiðum á
þessum slóðum vofir yfir hættan á
ísingu ef heimskautaloftið skyldi
steypast út yfir köld hafsvæðin.
ísingarvandamálið hefur þannig
vaxið í seinni tíð og margir togarar
hafa farizt vegna ísingar á síðustu
árum.
26. janúar 1955 hvolfdi togurun-
um Lorella og Roderigo norðaustur
af Hornbjargi og 40 manns fórust. 8.
febr. 1959 fórst svo Júlí með allri
áhöfn á miðunum við Nýfundna-
land. Þorkell Máni var þar hætt
kominn, og margir aðrir togarar, þar
á meðal nokkrir þýzkir, börðust við
óveður, ísrek og þó einkum mikla
ísingu.
Það er um tvenns konar ísingu að
ræða. Lang algengasta ísingin er
það þegar ágjöf frýs. f hvassviðrum
gengur sjór yfir skipin og myndar
sjávarlöðrið ísingu ef lofthitinn er
undir frostmarki sjávarins. Selta
sjávar á miðum Norður-Atlants-
hafsins er 30-35%o en frostmark
-^-1.9° C. Því meiri sem vindhrað-
inn er og því lægri sem loft- og sjáv-
arhitinn er, því meiri verður ísingin.
Mikill stormur ásamt mjög lágu
hitastigi lofts og sjávar veldur ákafri
ísingu.
Hin tegund ísingar, sem jafn-
framt er miklu sjaldgæfari, er þoku-
hrím. Þar er um að ræða hrím
(ósalt) sem myndast í þoku á heim-
skautasvæðunum. Það getur líka
verið hættulegt.
I þessari grein verður þó aðeins
fjallað um það, þegar ágjöf (sjór,
sjávarlöður) myndar ísingu.
Síðan Lorella og Roderigo fórust
hef ég safnað saman öllum þeim
upplýsingum um ísingu, sem ég hef
getað fundið. Þegar ég starfaði sem
veðurfræðingur á eftirlitsskipunum
Meerkatze og Poseidon og eins á
hafrannsóknaskipinu Anton Dorn,
fékk ég athuganir frá enskum og
þýzkum togurum.
Sjávardeild veðurstofunnar í
Hamborg hefur séð þýzkum skipum,
sem sigla um svæði þar sem ísingar
er að vænta, fyrir sérstökum eyðu-
blöðum, sem á skulu færðar athug-
anir.
Nú hef ég í höndum um 400 at-
huganir á ísingu vegna ágjafar.
6-7 Vindstig
9-1 0 Vindstig
Stig isingar: litil
talsverö
rnikil
mjög mikil
Þessar athuganir eru flestar gerðar á
hafinu kring um ísland, við Græn-
land og Labrador, og á Barentshaf-
inu. Fáeinar eru þó frá Eystrasalti.
ísingarmagnið er undir ýmsu
komið. Mestu máli skipta þó hita-
stig lofts og sjávar, vindstyrkur og
sjólag, en það fer aftur mikið eftir
vindstyrknum. Því kaldari sem sjór
og loft eru og því meiri sem veður-
hæðin er, því meiri verður ísingin. í
stormi og hafróti gengur mikill sjór
8 Vindstig
= 4—6 cm á 24 klst.
= 7—14 cm á 24 klst.
15 cm á 24 lilst.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 81