Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 11
Úreltar vinnureglur hins opin-
bera þarfnast endurskoðunar
»Enn bíðum við eftir að fá byggingar-
°g rekstrarleyfi fyrir nýrri hjúkrunar-
álmu við heimilið í Hafnarfirði. Þetta
hefur sem kunnugt er verið okkur
hugleikið lengi, en vandinn er sá að
ráðuneytið skiptir þörfinni fyrir
hjúkrunarrými og vistheimili fyrir
aldraða eftir kjördæmum. Er við nú í
tvígang höfum leitað eftir leyfi til að
hrinda af stað þessari mjög svo
nauðsynlegu framkvæmd, þá fáum við
þau svör að ekki sé vöntun á slíku
tymi í Reykjaneskjördæmi — en aftur
a móti sé vöntun í Reykjavík. En þá er
því auðvitað til að svara að við erum
með fólk alls staðar að af landinu hér á
Hrafnistuheimilunum. Sé því einblínt
syo fast á kjördæmaskipunina sem
raun er á má spyrja hvenær boð komi
frá ráðuneytinu þess efnis að við
megum ekki vera með nema
Reykvíkinga á heimilinu í Reykjavík
°g ekki nema Reyknesinga á heimilinu
í Hafnarfirði!
Slíkum boðum munum við vitaskuld
aldrei hlíta enda er hér um frjáls
félagasamtök að ræða sem hafa staðið
mjög vel að verki. Reikar hugur minn
þá aftur í tímann og hugleiði ég
hvernig málum aldraðra væri komið ef
Sjómannasamtökin með afbragðs-
menn í broddi fylkingar, sem sáu fram
1 tímann, hefðu ekki staðið að þeirri
timamótaframkvæmd sem Hrafnista í
Reykjavík var.
Eg hef þó trú á því að ráðuneytið
muni slaka á þessum meginreglum
sem það nú fer eftir, enda eru ekki
otðin nein raunveruleg skil í milli
þéttbýlisbyggðanna allt frá Mosfellsbæ
°g hér suður fyrir Hafnarfjörð. Þetta
er allt að verða eitt svæði og því má
ekki hanga lengur í einhverjum
»prinsípum“ og kotungshugsanagangi.
Ekki hefúr þess heldur orðið vart að
Hdraðir Reykvíkingar setji fyrir sig að
Hra á Hrafnistu í Hafnarfirði og vilja
margir fremur vera þar en á Hrafnistu
í Reykjavík. Þar ber margt til, oft
ættingjatengsl, þótt vegalengdir hafi
ekki lengur mikið að segja á höfuð-
borgarsvæðinu.“
Horft fram á veginn
„Við munum því eftir sem áður horfa
fram á veginn og hugleiða hvert stefnir
í málum aldraðra. Við teljum mjög
brýnt að þessum málum verði komið í
það horf að gamla fólkið geti verið
sem lengst heima hjá sér. En veikist
það þarf öldrunardeildin á Borgar-
spítalanum að geta fært út kvíarnar og
hafa fleiri rúm til umráða en nú.
Hressist fólk svo að það geti horfið
heim á ný er það af hinu góða - en sjái
menn fram á langvarandi veikindi þarf
að vera rými á hjúkrunarheimili fyrir
viðkomandi. Komi upp alvarleg
teppa í öldrunarlækningaþjónustu
Borgarspítalans munu öll rúm fyllast
og fólk ekki komast lengra. Þá mun sá
aldraði hugsa sem svo: „Nú er best að
vera ekki lengur að hugsa um að vera í
eigin íbúð, heldur reyna að komast
sem fyrst á dvalarheimili fyrir
aldraða.“
Þetta skýrir að meðan ekki er betur
búið að öldrunarlækningadeild
Borgarspítalans en raun er á, blasir við
sá vandi sem ekki verður leystur nema
með þeim hætti sem ég hef lýst. Þörfin
fyrir heimili og sérstaklega
hjúkrunarheimili handa öldruðum
mun verða sífellt brýnni.“
Fleiri geta greitt fyrir sig sjálfir
„Vissulega spyrjum við okkur hvort
það form sem við leggjum áherslu á sé
hið eina rétta? Er sú stefna rétt að
hagsmunaaðilar byggi og ríkið reki —
eða á ríkið bæði að byggja og reka? Ég
held að nú sé að koma upp kynslóð
aldraðra sem mun hafa efni á að borga
fyrir sig sjálf. Mér er kunnugt um að sá
hópur er stór sem mundi taka því
fegins hendi ef aðilar stæðu saman að
því að byggja vist- og hjúkrunarheim-
ili fyrir aldraða og mundu aldraðir
standa undir kostnaðinum sjálfir. Þá
væru þeir ekki upp á það komnir að
Heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti
gæfi eitthvert framkvæmda- og
rekstrarleyfi og þeir yrðu heldur ekki
upp á það komnir að gangast undir
vistunarmat hjá læknum eða
félagsmálastofnun viðkomandi sveit-
arfélags. Þeir gætu tekið sína ákvörðun
sjálfir án þess að nokkurn annan
varðaði um það.“
Hér með þökkum við Guðmundi
Hallvarðssyni fyrir spjallið í von um
að þau knýjandi úrlausnarefni sem
bíða og hann hefur lýst, hljóti farsælan
framgang — og Sjómannasamtökin
fái lyft enn fleiri Grettistökum landi
og lýð til heilla.
Atli Magnússon
sœplast
Pósthólf 50 • 620 Dalvík
Sími 466 1670 • Símbréf 466 1833
SJÖM A NNAD AGSBI .AÐIÐ
11