Eimreiðin - 01.01.1940, Síða 35
eimreiðin ENDURHEIMT ÍSLENZKRA SKJALA OG GRIPA
21
eru þar 4 rekkjureflar og 7 aðrir gripir, er alt hefði átt að vera
hingað afhent 1930, ef farið hefði verið að lágmarksóskum
íslendinga. Eru nú liðin mörg ár síðan þetta gerðist, og hafa
á þeim tíma m. a. komið frain þarna nokkrir gripir, er eigi
voru vísir 1927, en vér myndum leggja mikla áherzlu á, að
afhentir yrðu hið bráðasta. Og vitaskuld eru í danska Þjóð-
minjasafninu, eins og áður var getið, og jafnvel í fleiri dönsk-
um minjasöfnum, fjöldi íslenzkra gripa og margskonar, sem
í raun réttri ættu heima í Þjóðminjasafni voru og hvergi
annarsstaðar.
En um það, sem þegar hefur verið afhent, hvort sem skjöl
eru eða minjagripir íslenzkir, er það alment að segja, að því
fer fjarri að þar sé um nokkura gjöf að ræða, hvað svo sem
Danir nefna það. Sá hefur og ætið verið skilningur íslendinga,
eftir að þeir vöknuðu til fullrar vitundar um rétt sinn, og
eftir þeirri meginreglu á endurheimtin að halda áfram. Það
er óvefengjanlegur réttur vor sem sjálfstæðrar menningar-
Þjóðar að fá nú skilað aftur öllu því, er ófyrirsynju og vegna
sainbandsins við Danmörku fluttist þangað af þjóðlegum
verðmætum, en hér hefði átt að vera og hefði getað verið í
hindinu, ef meðferð þess í höndum hinna erlendu valdhafa
hefði verið tilhlýðileg. Vér krefjumst ekki annars en þess,
seni íslenzkt er og oss verðmætt af þjóðleguin eða menningar-
legum ástæðum, enda fráleitt, að Dönum haldist uppi að
skreyta sig með slíkum „lánuðum“ fjöðrum, er þeir hafa
ekki lengur neilt yfir þessari þjóð að segja eða því, sem henn-
ar er, nema hún sjálf gefi þess kost. Gersemar hennar eru
°g nú bezt varðveittar hér heima.
Eg mun nú með nokkurum orðum víkja að þeim atriðum
hessara mála, sem við koma islenzku fræðastarfi og háskóla
vorum. Hefur eigi nægilega verið bent á þetta áður, því að það
stendur í nánu sambandi við hér umrætt efni.
Þegar islenzki háskólinn var stofnaður 1911, var gert ráð
fyrir, að kensla í íslenzkum fræðum og íslenzk vísindastarf-
senii yrði einn meginþáttur i starfi hans. Þessar óskir hafa
að inörgu leyti ræzt. Nú eru þar 3 kennarastólar í íslenzkum
(norrænum) fræðum, og frá þessari deild hafa komið al 1-