Eimreiðin - 01.01.1940, Page 94
80
VIÐ ÞJÖÐVEGINN
eimreiðin
um, ýmsar eyjar í Kirjálabotni, borgin Salla og héraðið þar
umhverfis o. s. frv., alt samkvæmt nýjum landamærum, seni
sett verða af þar til kjörinni nefnd. Hangöskagann fá Rússar
leigðan til 30 ára og reisa þar flotastöð, hafa þar auk þess
nokkurn landher og flugher, fá opna samgönguleið um Pestanio
til Noregs og eru á þeirri leið undanþegnir eftirliti og toll-
skoðun Finna. Einnig fá Rússar rétt til beinna vöruflutninga
yfir Finnland til Svíþjóðar. Þannig lauk hinni hetjulegu vörn
Finna, sem vakið hefur aðdáun hvarvetna um heirn. Þessi smá-
þjóð, sem aðeins taldi 3 630 000 íbúa, varði landamæri sín,
þau er að Rússlandi liggja og eru hvorki ineira né minna en
1 566 km. að lengd, gegn fimmtíu sinnum stærri þjóð, með
þeim dugnaði, að hvergi bilaði vörnin um nálega ársfjórð-
ungs skeið.
Hjálpin, sem Finnum var veitt, kom frá mörgum þjóðum,
og einnig vér íslendingar höfum lagt fram vorn litla skerf. En
hjálpin var fjárhagslegs og líknarlegs eðlis, ekki liðshjálp,
nema hvað allmargir sjálfboðaliðar höfðu boðið sig fram úr
ýmsum áttum. Undir eins í byrjun rússnesk-
Hjálpin til finska ófriðarins sneru Finnar sér til Þjóða-
Finna. bandalagsins um hjálp, og sendi þá Þjóðabanda-
lagið fyrirspurn til bandalagsríkjanna um það, á
hvern hátt þau gætu bezt komið Finnlandi til aðstoðar. Á að-
fangadag jóla, 24. dezember síðastl., höfðu sjö ríki í Suður-
Ameríku sent svör sín um einlægan vilja til að verða Finn-
landi að liði, og fjögur önnur svöruðu á sama hátt 27. s. m.
Svör Bretlands, Frakklands, Irlands og Ástralíu voru þó ef
til vill ákveðnust og skorinorðust af öllum svörunum. Einnig
lofuðu hjálp sinni ríki, sem ekki eru í Þjóðabandalaginu, svo
senr Brasilia og Bandaríki Norður-Ameriku. í ræðu, sem full-
trúi Svía, M. B. O. Undén, hélt á þingi Þjóðabandalagsins 14.
dezember s. 1., þar sem hann talaði fyrir hönd Norðurlandanna
þriggja, Svíþjóðar, Danmerkur og Noregs, komst hann meðal
annars að orði á þá leið, að bæði Svíþjóð, Danmörk og Noreg-
ur hefðu um mörg ár haft nána samvinnu við Finnland. Þessi
fjögur ríki Norðurlanda hefðu fastlega ákveðið að halda sam-
an og standa utan við alla samninga stórveldanna, til þess á
þann hátt að tryggja öryggi sitt og sjálfstæði. Árásin á Finn-