Eimreiðin - 01.01.1940, Page 95
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
81
land hefði hvergi orsakað jafn djúpa andúð og meðal hinna
Þriggja norrænu bræðraþjóða Finna, enda hefðu þær þjóðir
sýnt injög áþreifanlega samúð sína með finsku þjóðinni.1)
Þannig virtist eftir undirtektunum á þingi Þjóðabandalagsins
sem úr öllum áttum mundi finsku þjóðinni berast hjálpin, á
hinni miklu reynslustund hennar. Hjálp kom að vísu, ekki
hvað minst frá Norðurlöndunum þremur, ennfremur frá Banda-
ríkjamönnum, Bretum, Frökkum, ítölum og fleiri þjóðum.
Sænski utanríkismálaráðherrann Gúnther hefur, að því er sím-
fregn hermir, neitað því, að Þjóðverjar hafi beitt Svía nokkurri
þvingun í Finnlandsmálunum, og hví skyldum vér vantreysta
°rðum hans? Það eru óneitanlega kaldhæðin örlög, að einmitt
hau ríkin, sem næst stóðu til hlífðar, skyldu verða þröskuldur
1 vegi þeirrar hjálpar, sem ein gat rétt hlut Finna, eins og kom-
var, ef á annað borð var unt að rétta hann. Og það er ekki
laust við að sá grunur læðist inn á hugann, að kl. 12 á hádegi
hinn 13. marz 1940, um leið og finski herinn lagði niður vörn
S1na á vígstöðvum Finnlands, hafi fent yfir þá hugsjón frelsis
°g sjálfstæðis, sein hefur verið líf og leiðarstjarna norrænna
bjóða frá ómunatíð.
Annars hafa allir þessir atburðir í Finnlandi sýnt áþreifan-
*ega, hve alt talið um gagnkvæma hjálp og öryggi Norður-
landaþjóðanna, þegar hættu ber að höndum, er
Island og yfirborðslegt. Má í því sambandi vísa til grein-
Norðurlönd. arinnar „Norræn samvinna“, sem birtist í Eimr.
fyrir þrem árum (árg. 1936, 4. h., bls. 335—361).
hlernaðarlegt bandalag Norðurlandanna er vitaskuld mál, sem
eillgöngu getur snert þau Norðurlandaríkin, sem her hafa, en
alúrei ísland. Það er ekki ólíklegt, að fitjað verði upp á ein-
hverju slíku bandahpgi nú eftir atburðina í Finnlandi. Hitt er
hó alls ekki víst, að stórveldið rússneska léti slíkt bandalag
°atalið. Atburðirnir, sem nú eru að gerast á Norðurlöndum, eru
hrópandi áminning til íslendinga um að standa fast saman um
frelsi sitt, en láta ekki blekkjast af neinum áróðri erlendis
lra» á þeim umrótstímum, sem nú standa yfir.
O Sjá The Appeal of llie Finnish Gonernmenl to llie League of
^Qtions (Special Supplement of the Monthly Summary of the League
of Nations. Dec. 1939, bls. 65).
6