Eimreiðin - 01.01.1940, Qupperneq 98
84
ÍSLAND 1939 — STUTT YFIRLIT
EIMRErÐIN'
—36) var flutt nokkuð af íssíld til Þýzkalands. En sú tilraun
féll niður þangað til 1938.
Hvalveiöar voru stundaðar á 3 skipum frá Tálknafirði, eins
og árið áður. Fengust 130 hvalir (1938: 147). Voru nú seld
innanlands 80 tonn af hvalkjöti til refafóðurs. En út voru
fluttar þessar hvalafurðir: — Hvalkjöt 492 tonn (687) á kr.
113 000 (174 þús.), hvalmjöl 676 tonn (205) á 97 þús. kr. (22
þús.) og hvalolía 681 tonn (843) á 464 þús. kr. (225 þús.)-
Er hér sýnileg stríðshækkun á olíunni.
Landbúnaðurinn. Heyfengur varð hinn bezti um alt land og
nýting góð. Skepnuhöld voru og í bezta lagi, þegar frá eru
skildar mæði- og garnapestirnar, sem gerðu mikinn usla í sum-
um héruðum og þó minni en áður. Slátrað var 331 þús. dilk-
um um liaustið, og var það 20 þús. færra en árið áður og 70
þús. færra en 1937. Þessi fækkun er að einhverju leyti að
kenna pestunum, en að suniu leyti því, að hændur þóttust hafa
ástæður til að auka fjárstofninn, sumpart vegna vonar um
verðhækkun vegna stríðsins. Meðalfall dilka var 14,41, sem
sagt er vera hámark. Árið áður hafði það verið 14,27. — Ut-
fluttar voru af saltkjöti 6543 tunnur á kr. 1 131 þús. (1938:
8865 á 907 þús.), freðkjöt 1835 tonn á kr. 1 862 þús. (2387 á
2 412 þús.), ull 572 t. á kr. 2 096 þús. (638 á 1415 þús.). Hross
voru flutt út 429 á kr. 89 þús. (372 á 59 þús.).
Mjólkurframleiðslan er í stöðugum vexti. Skýrslur ná að-
eins til mjólkurbúanna, og var mjólkurmagnið þar 19,8 miU-
lítra. Arið áður var það 17,2 og 1937 15,6 milj. 1. Ostur vat
fluttur úr landi 198 tonn á kr. 286 þús. kr. (1938: 112 t. á
122 000 kr.).
Garðrækiin var með langmesta móti, og varð t. d. kartöfh1'
uppskeran um 125 þús. tunnur og er því nú komin vel upP
í það að fullnægja neyzluþörfinni. Aðrir garðávextir voru °o
meiri en áður, og talið að gróðurreitir undir gleri séu nú sem
svarar 1 hektara samtals. Á síðustu árum hefur fluzt m11
kálormur, sem gerir víða mikinn skaða í görðum.
Iíornrækt liafði verið á 40—50 ha svæði, og varð uppskeran
um 1000 tunnur, sem er meira en nokkru sinni áður síðan
tilraunir hófust.
Loðdýraræktin fer ört vaxandi, sem sjá má af því, að haust-