Eimreiðin - 01.01.1940, Síða 108
94
ÓSÝNILEG ÁHRIFAÖFL
eimreiðin
un fyrir úrkynjuðu sálarlífi. Þeim, sem svara orðum mínum
með því, að þau séu fjarstæðufull, svara ég aftur með orðum
Napóleons: Lýsingarorðið fjarstæðufullur er lýsingarorð
heimskingjans. Lítilsigldur hugur er altaf fullur þverúðar.
Opinn hugur er bæði leiðitamur fyrir nýjum sannindum og
lika fær um að leiða aðra. Þessvegna er ráðlegging min þessi:
Áfellist aldrei nokkurn mann, málefni eða kenningu að órann-
sökuðu máli! Trúið á mátt hugans og möguleika hans!
Loks vil ég minna alla þá, sem Ieita nýrrar þeldtingar, á
orðin: Gjaldið keisaranum það, sem keisarans er, og guði það,
sem guðs er. Ef þér fylgið því ráði, þá komist þér ekki í
vandræði eða missið jafnvægið, þó að viðhorfið til lífsins
breytist. Alt sýnilegt er aðeins hugur, iklæddur formi og efni,
og vottar um ósýnilegan og alstaðar nálægan guðdóminn, hann
sem er hvorttveggja: hin skapandi orka og áhrifavald allrar
hinnar sýnilegu tilveru.
I. KAPÍTULI
Áhrif o(j orka.
ÁHRIFAÖFL! í þessu níu
stafa orði er slikur reginkraft-
ur fólginn, að hrundið getur
konungum úr hásætum, lagt
stórveldi í rústir og lamað
heila herskara svo, að þeir
standi ráðþrota og sigraðir
gagnvart honum. Slíkt áhrifa-
vald getur einn einasti maður
stundum haft yfir umhverfi
sínu.
Sagan greinir mörg dæmi
slíkra manna og kvenna, sem
sveigðu alt undiráhrif sin.Hver
erhann þessi örnæmi, óáþreyf-
anlegi kraftur, sem sífelt verk-
ar i öllu samlifi mannanna
hverja við aðra? Þessi kraftur,
sem streymir og ólgar í þús-
undunum, þó að ef til vill að-
eins einn meðal þúsundanna
öðlist það taumhald á hon-
um, sem geri hann að stjórn-
anda og leiðtoga allra hinna,
svo að þeir hlýða ósjálfrátt
hverju boði hans og banni.
Þekkingin um dáleiðslu og
fjarhrif, þessi tvö miklu á-
hrifaöfl mannkynsins, er
meira en 3000 ára gömul-
Arisku Hindúarnir hafa um
aldaraðir unnið að því að
skýra lcyndardóma mannssál-
arinnar, en þessir leyndar-