Eimreiðin - 01.10.1944, Síða 68
Arndís Björnsdóttir í „Móti sól“.
Arndís Björnsdóttir í „Réttvísin
gegn Mary Dugan“.
leiksögulegu sjónarmiði, en hér liafði gleymzt að reikna nie<>
þýðingarmiklu atriði. Áhorfendur voru ekki búnir að gleym3
eftirlætisleikendum sínum frá fyrri árum, og þeim fannst lítið til
um nýjungar á borð við „Sex verur“ og tókst enda ekki að sætta
sig við „Frk. Júlíu“ eftir öndvegisskáld Svía, Ágúst Strindbergi
þegar það loksins var sýnt liér af nýja fólkinu 37 árum eftir
framkomu leiksins í Svíþjóð. Að vísu var ráð fyrir hendi til
liæna álicrfendur að leikhúsinu. Það ráð var tekið, og „farcarnir
svokölluðu liéldu innreið sína á leiksviðið liér. Þetta var dýrt
spaug. Leikhús höfuðstaðarins hefur ekki beðið þess bætur, a
þá var slegið undan.
í sjónleiknum um verurnar sex kemur það fyrir, að sex ókun»
ar verur ryðja sér braut inn á leiksvið þar, sem verið er að æfa
leikrit eftir öllum kúnstarinnar reglum. Þessar sex verur: faðiD
móðir, sonur, dóttir og tvö börn ung, liafa sína sögu að segja °r
krefjast þess að fá að sýna hana á leiksviðinu eins og hún ge
til í sjálfu lífinu. Það er gengið inn á þetta, og fyrir bragði
verður sjónleikurinn til, sjónleikur mitt á milli þess, sem er, °r