Eimreiðin - 01.07.1949, Qupperneq 49
eimreiðin
ÍSLAND OG GRÆNLAND
201
roála í meðferð sinni á Grænlandi, eða ná íslenzkir menn n'u þar
íslenzkum lögum?
Það er augljóst mál, að eins og Grænland fylgdist með Islandi
undir krónu Noregs 1262—’64 og með Islandi frá krónu Noregs
til krónu Danmerkur 1814—’21, eins á það nú að fylgjast með
Islandi burt frá Danmörku.
Lausn Grænlandsmálsins ber nú harkalega að dyrum hér á
landi með fleiru en einu móti. Island á nú í notkun og í smíðum
8vo mikinn fiskiflota, að þorskstofninn við Island þolir ekki
meiri veiði en þessi floti getur afkastað. En þjóð vor vex, og
það verður að byggja fleiri og stærri skip, en aflinn á hvert skip
Idýtur að hraðminnka, því fleiri sem skipin verða. Og um fram
þetta flykkjast hingað á miðin hundruð erlendra fiskiskipa, sem
eru vel á vegi með að breyta fiskigrunnunum við Island í sömu
eyðimörk sem þau eru búin að gera hin fyrrum auðugu fiski-
grunn við Færeyjar. Grænlandsmiðin eru nú orðin einasti vaxtar-
°g lífsmöguleikinn fyrir íslenzku útgerðina. Allir hljóta að skilja,
livað í þessu felst, líf eða dauði fyrir afkomu íslenzks almennings!
Vor bláfátæka og marghrjáða þjóð má heldur ekki við því að
gefa Dönum öll námuauðæfi Grænlands eins og uppbót á fyrri
viðskipti: kryolit (útborgaður hreinn arður af hlutabréfum þeirr-
ar námunnar, sem starfrækt er, var á fjárlögum Dana fyrir 1946
aætlaður 9 millj. og 600 þús. d. kr.), kopar, ágætt og mikið asbest,
agætt og mikið grafit, gull, silfur (séra Ivar Bárðarson segir ca.
1360, að mikil gnótt sé af silfurmálminum á Grænlandi), heil
Ijöll og eyjar úr allavega litum marmara, úraníum, óhemjumiklar
l’lýnámur, steinolíu, tröllaukin kolalög og járnnámur o. s. frv.
Mann hreint og beint sundlar af þessurn miklu námuauðæfum,
er tekið er tillit til þess, að málmleit á Grænlandi er nú rétt
fyrst að byrja. Dýrmæti þessara námuauðæfa fyrir land vort er
niargfalt vegna þess, að hér er mikið auðvirkjanlegt vatnsafl við
Jslausar, sjálfgerðar hafnir við ódýrustu flutningabraut út um
allan lieim, hið frjálsa haf. Ásamt vatnsaflinu mynda þessi námu-
auðaefi skilyrði fy rir stóriðnaði og liámenningu á Islandi.
Sýnist þér, lesandi góður, að þetta skipti nokkru máli, og sértu
ekki þess hug ar að vilja gefa Dönum allt nema basaltklettana
kér, þá láttu Grænlandsmálið til þín taka og beittu þér af öllum
hug 0g öllu afli fyrir rétti og sóma þíns föðurlands.