Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1949, Síða 58

Eimreiðin - 01.07.1949, Síða 58
210 „DÚFURNAR MÍNAR“ EIMREIÐIN kosti. Og þá hlýtur það að vera satt og rétt á listræna vísu: — Þannig sé ég þetta. Og því dæmist rétt að vera: Hér lijá oss gefur enga fegurri fugla en fallegar dúfur. Mjúkur, bogsveigður bolurinn með breiða bringu, stuttan og gildan liáls og fallegt böfuð, og litur allur í dásamlegustu blæbrigðum, sem engin orð ná til að nefna né lýsa, svo að nálgist sann: Blýgrátt og leirblátt og ofið í ljósari litum með Iiárfínum blæbrigðum og litbreytingum, með öskugráum röndum og sveipum inn á milli. Yængir steggsins eru livitgráir að ofan með svörtum þverröndum yfir vængbroddana. Stélið ofurlítið lengra, eins og vera ber á fallegri dúfu og fullkominni. Hún er dröfnóttari og bvít undir vængjum, en gráteistótt að ofan. En bæði eru þau frá linakka og niður eftir liálsi að lierðum skreytt dásamlegasta litrófi í perlu- skelja-blæbrigðum með eirgrænu ívafi, sem blikar í undursamlegu, sískiptandi samræmi í sólskininu. Og steggurinn minn er stoltur fugl og glæsilegur! Ég sé engan annan fegurri. — Og þetta eru nágrannar mínir. „Þetta er falleg stúlka! — Ég ætla að eiga bana!“ sagði Símon Dalaskáld iðulega, er liann sá unga stúlku og laglega. — Hið sarna segi ég um dúfurnar mínar, sem eru ekki mínar. En ég á þær samt! Eins og fegurð liimins og jarðar. Gylliniský sólarlags- nis. Heiðmyrkur á smalaslóðum Austurlands! — „Dúfurnar mín- ar“ gleðja mig daglega. Ég heyri þær hjala saman langt fram á nætur, milli þess sem þær kyssast. Því að dúfnalijónin gera livort tveggja þetta, seint á kvöldin og bráðsnemma á morgnana. Um hríð í vor og langt fram á sumar fékk ég tækifæri til að kynnast prívatlífi dúfnalijónanna minna. Því að bjá þeim er vorið sólmánuður ásta og unaðar eins og lijá flestu lífi öðru. And- spænis glugganum mínum er rislágt liúsþak, en þó með allmiklum lialla. Eitt fagurt vorkvöld situr steggurinn minn allt í einu þarna, niður undir þakbrún, og mænir upp á þverbitann í þak- kverkinni, skáballt uppi yfir glugganum mínum. Hann er ein- kennilega órólegur, en þó virðulegur að vanda. — Ég veit þegar, að nú situr liún þarna uppi og hefur nána gát á öllum hreyf- ingum bans og fasi og veit svo vel, livað honum býr í brjósti. — Hann bíður þarna lengi. En hún kemur ekki. Svo teygir liann
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.