Eimreiðin - 01.07.1949, Side 66
EIMREIÐIN
218 ÍSLAND 1948
1948 1947
Freðfiskur .............. 22464 tonn 64,0 millj. kr. 25539 tonn 69,0 millj. kr.
Niðursoðinn fiskur...... 959 — 4,2 — — 340 — 1,4 — —
Síld, söltuð............ 109805 tn. 22,8 — — 66043 tn. 13,2 — —
Freðsíld ................. 4033 tonn 2,2 — — 867 tonn 0,4 — —
Lýsi ..................... 8036 — 33,7 — — 5407 — 22,9 — —
Síldarlýsi .............. 28336 — 74,3 — — 20527 — 51,8 — —
Hvallýsi ................. 773 — 2,1 — —
Fiskimjöl............... 5500 — 6,0 — — 5477 — 5,6 — —
Síldarmjöl .............. 33685 — 34,7 — — 11156 — 10,8 — —
Hvalkjöt .................. 864 — 2,9 — —
Hrogn, söltuð ........... 10393 tn. 1,3 — — 16206 tn. 1,9 — —
IÐNAÐUR er nú orðin mikilvæg atvinnugrein í landinu, en átti
yfirleitt erfitt uppdráttar á árinu, ekki sízt vegna takmarkaðs
gjaldeyris til efniskaupa. Af þeim iðngreinum, sem vinna aðal-
lega úr erlendu hráefni, mun tréiðnaðurinn nú umfangSmestur.
Hann notaði árið 1946 hráefni fyrir um 75 millj. kr., en áætlað
var, að innflutningsþörfin 1948 yrði yfir 80 millj. kr. Næst stærsta
iðngreinin með erlend hráefni er málmiðnaðurinn, en í honum
varð verðmæti framleiðslunnar árið 1946 um 46 millj. kr., en
var áætlað rúml. 60 millj. kr. 1948.
UTANRÍKISVERZLUNIN. Viðskiptajöfnuðurinn við útlönd
hefur verið sem hér segir síðustu fjögur árin:
Ár Innflutt. Útflutt
1948 ................ 457 millj. kr. 396 millj. kr.
1947 .................. 519 — — 290 — —
1946 .................. 443 — — 291 — —
1945 .................. 320 — — 268 — —
Viðskiptajöfnuðurinn á síðasta ári varð því óhagstæður um 61
millj. króna. Aðalviðskiptaþjóð okkar voru Bretar, eins og und-
anfarin ár. Seldum við þeim fyrir 119 millj. kr. (1947: 107 millj-
kr.), en keyptum af þeim fyrir 136 millj. kr. (’47: 190 millj. kr.)•
önnur helztu viðskiptalönd voru Þýzkaland, Holland, Tékkó-
slóvakía og Bandaríkin.
Verðmæti nokkurra helztu innflutningsliðanna var sem hér
segir: Skip 65,6 millj. kr., vélar og áhöld (þar með taldar raf-
magnsvélar og -áhöld) 60,3 millj., brennsluolíur 28,2 millj., trjá-