Eimreiðin - 01.07.1949, Page 76
228
ÞEGAR ÞURRKURINN KOM
EIKIREIÐIN
En nú æpir Halldóra og kæfir spumingar lians: „Slepptu mér,
segi ég. Þú drepur mig! Jesús minn!“
Halldór hugsar: HvaSa ærsl og stimpingar eru þetta í stúlku-
skinninu, sennilega ósjálfráður krampi í fíngerðum taugum, sem
eru ofhlaðnar af taumlausri ást. Gleðin hefur orðið henni ofraun.
„Vertu mér trú til dauðans, þá mun ég gefa þér lífsins kórónu“,
stamar Halldór og kreistir hana í karlmannlegum æsingi.
Hún hamast í faðmi lians. En liann ætlar ekki að sleppa, fyrr
en æðið rennur af henni. Og þá mun hún blessa liann um aldir
alda, amen. Jarnrn. Hann hvíslar, eins og verið sé að gera gælur
við kenjóttan krakka.
„Ég veit, að þú elskar mig, eins og ég elska þig, Halldóra.
Innsiglaðu barasta játningu þína með kossi. -— Kysstu mig,
lagsi”.
En nú er stúlkan orðin hraðmælsk.
„Kyssa þig! ICyssa þig, andstyggilegi aulabárður, óheflaði
sveitadóni. Svei þér! Jesús minn, kálaðu mér ekki, kreistu mig
ekki í sundur. Almáttugur guð! — Ég að elska þig. Heldurðu,
að þú sért svo elskulegur? Kyssa þig! Ertu svo kyssilegur, arg-
vítugi asnakjálki! — Hafðu þetta — og þetta — og þetta“.
Kjaftshöggin dynja á Halldóri. En hann heldur sem fastast,
armar hans eru eins og sogskálar risavaxinna kóraldýra.
Svo spilar hann lit trompinu:
„Halldóra, Halldóra!
Viltu verða eiginkvinna mín? Ég er ríkur — mjög ríkur. Ég
á hest — góðan hest. Ég á fé — margt fé. Ég á peninga -— mikla
peninga.
Viltu ? Viltu? Viltu?“
Hlífðarlaus liögg hennar hrekja liann undan sænginni. Hann
flýr. Honum sýnast augu hennar spú eitri og eimyrju haturs og
fyrirlitningar þarna í iðulausu náttmyrkrinu. Og af rósamunm
hennar, sem fyrir skömmu hafði þrýst kossi á varir lians, streymir
stríður straumur skrækjandi skammaryrða.
„Farðu til fjandans, flagari. Þú ert nautheimskur. Lyktin af
þér kæfir liverja kristna sál, sem kemur nálægt þér. Oju bara. —
Heldurðu, að nokkur kona vilji þig? Þú mátt eiga þitt, árans
maurapúkinn, svíðingurinn. Farðu frá augunum á mér. Hvað
heldurðu, að þú sért? Þú ert asni, þú ert grasasni!“