Eimreiðin - 01.01.1950, Blaðsíða 68
Á FERÐ OG FLUGI
EIMREIÐIN
56
er þeir létu af herþjónustu, bar þau saman við samskonar kjör
bandarískra liermanna, sem hann taldi miklu betri en brezkra,
og urðu um þetta fjörugar umræður. Nokkrir tóku til máls af
bekkjum stjórnarinnar, þar á meðal Attlee forsætisráðberra, en
ekki tóku þeir til máls Churchill eða Anthony Eden, leiðtogar
stjórnarandstöðunnar, létu sér nægja að sitja og hlusta á umræður
liinna.
Þingmenn eru vfirleitt stuttorðir og gagnorðir og láta sér hvergi
bregða þó að gripið sé fram í fyrir þeim, þagna þá og bíða a
meðan eða fá sér jafnvel sæti, unz sá, sem grípur fram í, hefur
lokið athugasemd sinni. Frjálslegur blær var á öllum umræðum,
þingmenn ])eir, sem töluðu, injög vel máli farnir og fljótir að
finna snöggu blettina á andstæðingunum. Menn láta fara vel
um sig á bekkjunum, leggja jafnvel fæturna upp á bök bekkj-
anna næstu fyrir framan sig eða upp á borðröndina lijá forseta,
þeir, sem þar sitja næstir, og liaga sér yfirleitt eins og þeir séu
lieima lijá sér. Þó létu þeir aldrei undir höfuð leggjast að hneigja
sig fyrir forseta, er þeir komu inn eða gengu út úr salnum. Það
hefur verið sagt um neðri málstofuna brezku, að hún sé vand-
látasti áheyrandi í lieimi, og mun nokkuð liæft í því. Miklar
Þinghúsbyggingin í London.