Eimreiðin - 01.01.1950, Blaðsíða 70
eimreiðin
Vizkusieinninn.
Eftir dr. Alexander Cannon■
Það eru ekki margar aldir síðan að snjöllustu hugsnðir og vís-
indamenn, sem uppi voru, glímdu við þá þraut að finna vizku-
steininn, sem svo var nefndur. Frægir heimspekingar, læknar og
kennimenn brutu heilann um þetta viðfangsefni. Vísindamenn,
í þeim skilningi sem það orð er nú notað, voru þá fáir. En nefna
má þó menn eins og Roger Bacon, sem kallaður liefur verið
„faðir vísindanna“. Hann hafði mjög mikinn áliuga fyrir gull-
gerðarlist og trúði á vizkusteininn. Bacon var uppi á 13. öld og
ritaði fjölda bóka. í einni þeirra, sem liann nefndi „Spegil gull-
gerðarlistarinnar“, segir hann: „Einn nauðsynlegur háttur í und-
irbúningi steinsins er að móta liann stöðugt í eldi, en það er sú
aðferð, sem guð beitir alstaðar í náttúrunni“.
Hvað er svo þessi vizkusteinn, — sem var takmark allra þeirra
mörgu merku manna, sem iðkuðu gullgerðarlistina? Honuin er
lýst þannig: „Vizkusteinninn er samansettur úr öllum frumefn-
um jarðar, í fullkomnu jafnvægi. Hann er nákvæm blöndun nátt-
úruaflanna, alhliða eining andlegra kosta, órjúfanleg samtenging
líkama og sálar. Hann er liið tárlireinasta og ágætasta efni, sem
fundið verður til þess að mynda ósigrandi líkama, sem höfuð-
skepnurnar hvorki geta tortímt né skaðað á nokkurn hátt, líkania,
sem er gerður af konunglegri íþrótt og list“. Sá, sem eignazt hafði
vizkusteininn, var talinn geta breytt silfri og öllum óæðri málni-
um í skírt gull, framleitt dýrmætar perlur og gimsteina, svo að
aðrar eins gersemar áttu engan sinn líka í sjálfri náttúrunni,
framleitt meðal við öllum sjúkdómum, lífselexír, sem læknaði
hvert mein, lengdi lífið og veitti mönnum fullkomna lieilsu, jafn-
vel ellihrumum æskuna á ný.
Ýtarleg og lieiðarleg rannsókn á hinum miklu bókmenntuin
gullgerðarlistar hafa styrkt marga rýnendur í þeirri trú, að vissir
heimspekingar frá þessu tímabili, þeir hinir niiklu meistarar í