Eimreiðin - 01.05.1964, Page 12
Listahátíð
Ávarp Jóns Þórarinssonar,
formanns Bandalags ísl.
listamanna, við setningu
Listahátíðarinnar
í Háskólabíói 7. júní
Jón Þnrarinsson.
Ég leyfi mér, fyrir hönd Bandalags íslenzkra listamanna, að bjóða
yður öll velkomin til þessarar samkomu.
í fjórða sinn boðar bandalagið til íslenzkrar listahátíðar í þvi
skyni, að listamennirnir sjálfir og þeir, sem listum unna, megi
gera sér þess nokkra grein, hvar vér erum á vegi stödd í þeim efn-
um, hvort vér höfum staðið í stað hin síðari ár ellegar munað nokk-
uð á leið.
Þrjár hinar fyrri hátíðir voru nefndar Listamannaþing, en aðeins
hin fyrsta var þó tengd nokkru þinghaldi í venjulegri merkingu
þess orðs. Þar voru fundir haldnir og ályktanir gerðar um þau mál,
sem þá voru efst á baugi í liópi listamanna. Að öðru leyti var höfuð-
áherzla lögð á kynningu íslenzkrar listsköpunar og listflutnings,
eins og enn mun verða gert á þeirri hátíð, sem nú er að hefjast.
Þó ber það hér til nýlundu, að á þessari hátíð koma fram tveir er-
lendir gestir, enska söngkonan Ruth Little og Vladimir Asjkenazy
píanóleikari frá Sovétríkjunum, og eru þau boðin sérstaklega vel-
komin til hátíðarinnar. Þessi nýbreytni er í samræmi við sjónarmið,
sem mjög hefur látið á sér brydda í umræðum um þessi mál innan
Bandalagsins, og á rætur í mjög breyttum aðstæðum að mörgu leyti,