Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1964, Page 13

Eimreiðin - 01.05.1964, Page 13
EIMREIÐIN 101 síðan hið fyrsta Listamannaþing var háð. Má vænta þess, ef fram- hald verður á þessu hátíðahaldi Bandalags íslenzkra listamanna, að hátíðirnar fái smám saman alþjóðlegri svip en þær hafa haft til þessa. Upphafsmaður að fyrsta Lista- niannaþinginu, sem haldið var í nóvember 1942, var Páll ísólfsson, °g setti hann fram þessa hugmynd sína í blaðagrein í apríl það ár. Hún var fram komin vegna deilna, sem risið höfðu með listamönnum °g áhrifamiklum valdamönnum í þjóðfélaginu, átaka, sem höfðu náð inn í raðir listamannanna sjálfra °g riðlað fylkingum þeirra. Höfuð- hlgangur þingsins var að efla sam- stöðu listamanna annars vegar, hins Vegar að minna á gildi listanna í þjóðlífinu og kynna það starf, sem verið var að vinna á vettvangi þeirra. Þegar þetta var, logaði heimurinn í ófriðarbáli. Miklar menning- arþjóðir bjuggu við andlega áþján, sem á sér fáar hliðstæður í sög- unni. Þær þjóðir, sem okkur eru nákomnastar að frændsemi og Vegna sögulegra tengsla, Iiöfðu orðið undir járnhæl þess valds, sem hér var að verki, og allt samband okkar við þær slitnaði um árabil. Áðstæðurnar neyddu okkur til að leita í aðrar áttir, og þannig hóf- Ust samskipti, menningarleg og stjórnmálaleg, sem við höfum haldið áfram, ótilneyddir, til þessa dags. Á sama tíma var að hefjast hylting í íslenzku efnahags- og atvinnulífi, sem hlaut að hafa — og hefur haft — mikil og djúptæk áhrif á menningarlíf þjóðarinnar. ^ið stóðum því um þessar mundir á vegamótum, jafnt í andlegum Sem efnalegum málum. Ef til vill áttu Listamannaþingin sinn þátt 1 því, að við töpuðum ekki með öllu áttunum á þeim krossgötum. Kannske hefur h'ka sú von búið í hugum þeirra, sem gengust fyrir hinu fyrsta Listamannaþingi. En víst er, að sú áminning, sem Páll hsólfsson setur fram í fyrrnefndri grein sinni og leggur þyngstu aherzlu á, var ekki ástæðulaust: „að vakað sé vel yfir þvi, að frjáls Dr. Páll Isólfsson.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.