Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1964, Page 23

Eimreiðin - 01.05.1964, Page 23
EIMREIÐIN 111 uppi í kofaskriflinu? Þar getur hann aldrei bjargast og sízt nú, er hann hefur misst allt sitt. Einnig lánstraustið." Hann sat um stund hljóður og hreyfingarlaus. Síðan reis hann á fætur og gekk frarn í dyrnar. „Jólin eru að ganga í garð,“ tautaði hann, — honum fannst hann þurfa að afsaka áform sitt með þeirri athugasemd. „Hver ykkar hefur hest og sleða?“ spurði hann bændurna. Ymsir sögðu til sín. Hann valdi þann, er liann þekkti bezt. Bað hann að finna sig inn fyrir, og lokaði, svo sem hægt var með brotnu hurðinni. „Geturðu farið ökuferð fyrir mig? Nú í nótt? Inn á heiði, í kofann, þar sem Stóri-Jón á heima.“ Þarf þess í nótt?“ Verzlunarstjórinn beit í vör- ina. Það lá við, að hann sleppti sér aftur. En svo gekk hann til bóndans og hvíslaði að honum. „Það verð- ur að vera í nótt. Þú verður að sjá til að verða á undan honum, með því að fara inn dalinn, eða ná honum — hann fór fjallaleið- ina. Eina kýrin hans er í húfi. Þú veizt að hann hefur misst allt fé sitt. Ég varð hálfær áðan og synjaði lionum þess, sem hann bað um. Hann var líka viti sínu f jær.“ „Ég fer þá þegar í stað. Hvað á ég að gera?“ „Fær honum ofurlítið af varn- ingi. Ég skal láta búa það út í flýti. Og á nteðan skrifa ég nokkr- ar línur, sem þú tekur með þér. Sjáðu um, að hann lesi þær. Er færðin góð? Verður bjart í nótt? Heldurðu að þér takist þetta?“ „Það lield ég. Ég skal gera, hvað ég get. Ég fer þá að beita hestinum fyrir sleðann.“ Ekillinn náði göngugarpinum Jrar, sem saman koma fjallaleið og sveitarvegur. Hann fékk honum bréfið. Hann braut það upp og las. Síð- an settust Jreir sinn hvorum meg- in á sleðann og óku áfram. En aldrei mun ekillinn gleyma því, hve kátlega Stóri-Jón komst að orði, þegar hann hafði lesið bréfið: „Nú er ég steinhissa! Hvað gengur að manninum?

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.