Eimreiðin - 01.05.1964, Qupperneq 35
EIMREIÐIN
123
ur að aldri, fæddur að Sandi í Aðaldal 18. ágúst 1904. Þó að þessi
grein sé beinlínis skrifuð af því tilefni, þá er ætt hans svo kunn og
fraendgarður hans svo auðkennilegur í samtíðinni, að ég tel þarf-
laust að rekja það nánar.
II
Þegar Þóroddur kom í þriðja bekk Kennaraskólans haustið 1935,
var hann um margt miklu þroskaðri maður og reyndari, en allur
þorri þeirra, sem þar voru fyrir. Ekki sýndist það í því, að hann
hefði sig mjög í frammi, því að hann var hægur í fasi, hlédrægur
og óhvatur til orðvíga. En hann var traustur og samvizkusamur í
námi, gerhugall og óflasfenginn, rökhyggjumaður og ódeigur að
brjóta heilann um hlutina. Hygg ég og, að þetta hafi einkennt Þór-
odd jafnan síðan. Námsferill hans var þá þegar orðinn með nokkuð
sérkennilegum hætti. Hann hafði gengið á unglingaskóla á Breiðu-
mýri og lokið prófi frá héraðskólanum að Laugum vorið 1926. Upp
úr því siglir hann til Noregs og tekur að stunda búfræðinám við
landbúnaðarskólann á Kalnes á Östfold og lýkur því námi árið 1929.
Næst skýtur Þóroddi upp í Kaupmannahöfn og leggur nú stund á
landafræði, dýrafræði, grasafræði og jarðfræði við Kennaraháskól-
ann þar í borg árin 1931 og 1932. Þannig undirbúinn hefur hann
námið í þriðja bekk kennaraskólans og lauk kennaraprófi þá um
vorið 1936. Hafði þá og áður, eftir að hann kom frá Kaupmanna-
höfn, verið kennari við Laugaskóla og héraðsskólann á Reykjum.
Hér var því hvorki viðvaningur né heimaalningur á ferð.
Þessi námsferill gæti gefið til kynna, að Þóroddur hafi framan af
ævi verið nokkuð óráðinn í því, hvað hann skyldi gera að aðalævi-
starfi sínu. Vera má og, að fjárhagsástæður framan af ævi hafi
valdið nokkru um. En næst er það grun mínum, að meginorsökin
hafi verið meðfædd skáldskaparhneigð og bókmenntaáhugi og önn-
Ur slík hugðarmál, sem á þeim tíma máttu teljast allt annað en
efnileg til lífsframfæris. Ræð ég það meðal annars af því, að þegar
Þóroddur á þess kost löngu síðar að dvelja við nám á Bretlandseyj-
utn, 1948—49, aðallega á Trinity College í Dublin, þá leggur hann
stund á enskar bókmenntir. Og víst er um það, að þegar Þóroddur
Guðmundsson kvaddi Kennaraskólann, þótti okkur kennurunum
þar sýnt, að hann myndi verða traustur og gegn skólamaður, enda
hefur sú orðið raunin á.