Eimreiðin - 01.05.1964, Qupperneq 41
UNGIR LISTAMENN:
Sigurður Björnsson
óperusöngvari.
Ungur Hafnfirðingur, Sigurður
l'jörnsson, óperusöngvari, hefur að
undanförnu getið sér gott orð fyr-
tr söng sinn í Þýzkalandi og víðar
1 Evrópu. Hann hefur verið fast-
ráðinn við ríkisóperuna í Stuttgart
síðastliðin tvö ár og á liðnum vetri
söng hann þar í samtals 19 óper-
urn. Hann er ráðinn þar í eitt ár
1 viðbót, en dvelst nú í sumarleyfi
hér heima, og á að vera kominn
aftur til óperunnar 15. september í
haust. Auk þess, sem Sigurður
Ejörnsson hefur sungið víða um
Þýzkaland, hefur hann komið fram
1 ýmsum öðrum löndum, meðal
unnars hefur hann oft sungið á
Spáni, en þar söng hann t. d. í
fyrra guðspjallamanninn í Matthe-
usar-passíunni. Einnig hefur hann
sungið í Tékkóslóvakíu, Austur-
ríki, Hollandi, Belgíu og Dan-
utörku.
Sigurður er fæddur i Hafnarfirði
1932. Foreldrar hans eru hjónin
Guðfinna Sigurðardóttir og Björn
Árnason bifreiðastjóri. Að afloknu
námi í Elensborgarskóla stundaði
Sigurður nám í Tónlistarskólanum
í Reykjavík, þar sem hann nam
fiðluleik í fimm ár, og var Björn
Ólafsson konsertmeistari kennari
lians. Á þeim árum var Sigurður
einnig í söngtímum hjá Guðmundi
Jónssyni óperusöngvara og ítalska
söngkennaranum Primo Montan-
ari, og loks var hann eitt ár við
söngnám í Tónlistarskólanum, og
var kennari lians þar Kristinn
Hallsson óperusöngvari.
Sigurður útskrifaðist úr Tónlist-
arskólanum í Reykjavík vorið
1956, og um liaustið fór hann ut-
an til framhaldsnáms og innritað-
ist í Tónlistarskólann í Múnchen
í Þýzkalandi. Þar stundaði hann
9