Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1964, Side 56

Eimreiðin - 01.05.1964, Side 56
144 EIMREIÐIN Að hreint hjarta, heilar tilfinning- ar eru gulli betri — þetta virðist kjarni kvæðisins. Eftir skilnaðinn við Ellen Mal- berg tók að halla undan fæti fyrir skáldinu. í augum almennings var Nis Petersen nú aðeins svallarinn, sem hafði brennt sjálfan sig upp til agna. Menn voru liættir að vænta slórra aíreka frá hans hendi. En strengir ljóðhörpu hans voru þó ekki þagnaðir. Ómar hennar áttu enn eftir að berast út yfir gervallar byggðir Danmerkur með ljóðinu Da seeren tav, en sjálfur taldi hann það sitt bezta kvæði. Það var ort í upphafi liernámsáranna. Kvæðið var aðvörun skálds til þjóðar sinn- ar. Það kom í fylling tímans og olb vakningu, enda talið eitt af höfuð- kvæðum í dönskum bókmenntum. Lokaerindi þess er svohljóðandi: Og det er den gode Guds l<þfte — og intet niere end clette: sort br0d og velsignet sult og træthed til nattens blund — tidlig regn og sildig regn til sols b0rn og de slette samt værn nok for npgenhed det lover jeg med min mund. Hold hus med lijertet, jeg gav jer med — om grá eller lyse dage. I fik det rent som et stjernedryp spilclt pá en natblá sky. Men den eneste ting forlanger jeg: rent vil jeg ha’ det tilbage, den dag vi ses pány. Um síðustu æviár skáldsins hef- ur seinni kona hans, Annelise Nis Petersen skrifað litla bók, er hún nefnir Mod hceld. Bókmenntalegt afrek er þessi litla bók ekki, en við lestur hennar vaknar sú spurning, hvort hún sýni ekki skáldið — manninn, Nis Petersen eins og hann í raun réttri var. Þessi kona hafði þolað súrt og sætt með skáld- inu. Hún lýsir samvistum þeirra og fegrar hvorki sjálfa sig né hann. Sú mynd, er bók liennar gefur af skáldinu, er í höfuðdráttum hin sama og birtist í ummælum vinar hans, bcikaútgefandans Estrid P11 or: „Hann (N. P.) var í innsta eðh maður lijartahlýr, er aldie' gleymdi auðsýndri velvild. O& samt var honum gjarnt til að ga811 rýna allt og alla, rífa niður, '1 hafa stóryrði. Dæmi um þetta eru mörg hinna hrokafullu blaðavi tala, er hann átti á síðari árum- En samt er mér nær að halda, að stoi yrði hans og harðir dómar væru 1 rauninni eins konar skel, er hann brá yfir sig á stundum, þegar bou um veitti örðugt með ritstörfu1

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.