Eimreiðin - 01.05.1964, Blaðsíða 66
Oddný Guðmundsdóttir:
STÖKUR
Guðinn Hermes
Háttvirtur guðinn, höggvinn í marmarastein,
var hylltur meðal þjófa og verzlunarmanna.
Tvishipt var stéttin, þó var liún allt um það ein,
álitu Grikkir, þeir frumherjar visindanna.
Pétur Gautur
Hann var sá herjans þrjótur,
sem hverjum manni brást.
Hún beið hans alla œvi,
auðmjúk og fús að þjást.
— Karlmannsins kyndugi draumur
um konuást.
Að loknum lestri
Um syndir og volceði sitt
sveittir þeir skrifa.
Kveddu í kálfshjarta þitt
ltjark til að lifa.
Vinsælt yrkisefni
Hún tekur af sér skóna og krækir frá sér kjólinn.
klæðir sig úr peysu og leggur hana á stólinn.
Harpa min er brotin og Ijóð min vegalaus.
Hún lætur aftur augun og breiðir yfir haus.
bókafélagsins, er ævisagan jafn-
Iramt sérstaklega vönduð um ytri
búning, prýdd fjölda mynda, sem
auka gagnsemd hennar. Meðal
þeirra er ágæt heilsíðumynd af liin-
um virðulega legsteini, sem niðjar
séra Jóns undir forustu dr. Jóns
Þorkelssonar reistu á leiði þjóð-
skáldsins fyrir fjórum áratugunt-
Á hann sannarlega heima fyrir
kirkjudyrum á Bægisá.
Hitt er jafn satt, að bókmennta-
leg afrek séra Jóns Þorlákssonar
rísa hærra og vara lengur en nokk-
urt minnismerki, hvort heldur er
úr málmi eða marmara.