Eimreiðin - 01.05.1964, Síða 74
1(52
EIMREIÐIN
þá bjó á Krossi, og fékk hann og Gunnar Guðmundsson á Krossi
til að ganga að heyinu með sér. Vinnukona Alexanders, Margret
Stefánsdóttir, nú á Rima, var þar viðstödd, en Alexander uppi 1
fjalli. Tóku þeir úr því tuggur, sent þeir stungu inn í það aftur,
og sagði Gísli, að þetta Itey væri ólíkt hinu heyinu Alexanders og
líkast að verkun heyi Jónasar. Nokkrum dögum síðar spurði Jónas
Gísla, hvoyt hann ekki af grastegundunum hefði þekkt, að þetta
umtalaða hey hefði verið af túnparti Jónasar og hefði Gísli þá svar-
að, að hann gæfi ekki hreint út á það að svo stöddu.
Gunnar sagði, að þetta hey hefði ekki verið hirt á „útparti' i
sumar (þ. e. þeim hluta túnsins, sem þeir höfðu til afnota hann og
Alexander). En seinna breytti reyndar Gunnar þessu vottorði sínu
þannig, að það hefðu verið fáeinir baggar, sem Alexander hefði hirt
út af fyrir sig, sem liann hefði því ekki séð og gæti því ekki fortekið
fyrir það, að það hefði verið heyið úr þeim, sem lá ofan á hinu
öðru heyi Alexanders. Gunnar heldur, að þetta liey hafi verið um
li/2 til 2 hestar, eða minna en það, sem Jónas missti, enda hefux
Alexander borið, að þennan sama dag, sem Jónas hirti sína kimbla,
hefði hann líka hirt nokkra kimbla af saman skefjum.
Jónas ber enn fremur, að sama kvöldið, sem haixn hirti þessa sína
bagga, liafi bann séð þetta umtalaða hey Alexanders standa ótyrft
seint um kvöldið, en um morguninn eftir var búið að tyrfa það-
En í þessari millitíð lieldur hann, að hann hafi misst sitt hey. "
Alexander segist hafa tyrft sitt hey seint um kvöldið.
Jónas Þorsteinsson getur þess, að hann hafi heyrt Gísla Eyjólfs-
son segja, að hann — þegar Alexander flutti frá Krossi að Stuðlum
— hafi tekið af Alexander hlut (hann veit ekki hvern), sem hanii
(Gísli) átti. Ennfremur hefur hann heyrt haft eftir Birni Þorleifs-
syni á Stuðlum, að hann (Björn) hafi tekið af Alexander borðstúfa
eða spýtur úr strandskipi, sem hann (Björn) hefði átt. Sumt af þessu
segist Jónas hafa heyrt áður en hann missti lieyið. Hafi grunsemi
sín því fremur vaknað, þegar hann sá þannig lagað heyið í heyi
Alexanders.
Kærandi (Alexander) leggur málið í dóm og heimtar, að Jónas
beri málskostnað allan, samt að orðrómurinn um þjófnað hans ;l
heyinu verði dæmdur dauður og marklaus og sér dæmdar 25 kr.
sem skaðabætur fyrir mannorðshnekki af Jónasi.
Kæiandi (Jónas) heimtar sig frífundinn að öllu leyti og sér tiÞ