Eimreiðin - 01.05.1964, Blaðsíða 75
EIMREIÐIN
163
dæmd daglaun fyrir mót í Seyðisfirði fyrir sáttanefnd og aftur nú
Hér í dag, þar hann getur ekki fundið, að hann hafi sjálfur gjört
neitt rangt. Leggur svo málið í dóm.
Alexander tilkynnt, að þetta réttarhald gefi ástæðu til opin-
berrar rannsóknar um kringumstæður að þessu heyhvarfi. — Rétti
slitið.
Jón Johnsen sýslumaður.
Alexander Jónsson. Guðni Jónsson.
Jónas Þorsteinsson. G. Jóhann Skúlason.
(Sanikv. þingbók SuSur-Múlasýslu 1881—87, bls. 210).
Athugasemd.
1882 (fardagaárið 1882—83), þegar þessi atburður gerðist, sem
aðallega er fjallað um í framanrituðum þingbókarkafla, voru 5 bú-
endur á þessum bæ, Krossi í Mjóafirði. Þeir voru þessir:
1. Guðrún Jónsdóttir var ekkja, sem hafði lengi búið á þriðjungi
jarðarinnar (frá 1868), lengst af með manni sínum, sem var dáinn
fyrir fáeinum árum, en síðan hafi fóstursonur þeirra, Sigurður Þor-
steinsson verið ráðsmaður eða fyrirvinna hennar, og hann tók við af
henni og kvæntist næsta vor. Hvorugt þeirra er getið um í sam-
bandi við þessi málaferli.
2. Gunnar Guðmundsson, ungur bóndi og nýlega kvæntur, son-
ur Guðrúnar. Verónika Eiríksdóttir, sem nefnd er hér að framan,
var kona h^ns.
3. Alexander Jónsson, tengdasonur Guðrúnar og þá h'ka mágur
Gunnars og í einhvers konar félagsbúi með honum. Hans 2. bú-
skaparár á þessum bæ, en hafði áður búið eitt ár á Stuðlum í Norð-
firði og lengi þar áður verið vinnumaður hjá tengdaforeldrum
sínum.
4. Gísli Eyjólfsson og k. h. Halldóra Eyjólfsdóttir. Hann fluttist
ungur að Krossi með móður sinni og stjúpföður, hafði lengi búið
þar en ekki samfellt. Sigurður Þorsteinsson (sjá 1.) varð tengda-
sonur þeirra Gísla og Halldóru.
5. Jónas Þorsteinsson. Þetta var 2. ár hans í bændatölu og það
síðasta, en kona hans, Sigríður Magnúsdóttir, hafði búið lengi
þarna á Y$ jarðarinnar með manni sínum og síðan ekkja, áður en
hún giftist Jónasi.
Jónas Þorsteinsson var fæddur 4. apríl 1853 í Skuggahlíð í Norð-