Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1964, Page 86

Eimreiðin - 01.05.1964, Page 86
174 EIMREIÐIN hvítri mjöll, öll útsýn helhvítri muggu komandi vetrar... Þannig að heim- an búin mætti hin unga kynslóð kreppuáranna, afsprengi „aldamóta- mannanna", óskapnaði liernámsár- anna í höfuðstað íslands, þannig að heiman búin sá hún liinn langþráða röðul frelsisins birtast þjóð sinni! Við þekkjum, hvernig honum farn- aðist, piltinum í 79 af stöðinni. Það var síður en svo órökrænt hjá höf- undi sögunnar, þegar hann lét ltann farast á leiðinni heint. En hvert verð- ur svo fararsnið hinnar nœstu kyn- slóðar? Tngúlfur Kristjánsson: NÝVÖKNUÐ AUGU. Sögur. Reykjavík 1963. í þessari bók eru tíu smásögur, flestar stuttar. Þær eru mislitar að efni og misjafnar að gerð, en allar eru þær vel skrifaðar, málið laust við hnökra og stíllinn eðlilegur, höfund- urinn fellur hvergi fyrir þeirri freist- ingu, að gera mál sitt eða stíl ankanna- legt eða lineykslanlegt í þeim tilgangi að vekja á sér athygli — eða jafnvel blekkja grunnfærna menn til að líta á sig sem róttækan, djarfan og sérlega frumlegan. Ein sagan er bernskuminning, tvær hálftáknrænar rnyndir, og tvær gerast erlendis. Þær eru allar vel og liaglega gerðar nema ein. Hún heitir Sumar i Hnjukadal, en þar hefur höfundurinn auðsjáanlega flaskað á því að taka fyr- ir of viðamikið efni til þess að því verði gerð skil í stuttri sögu, minnsta kosti með þeint tökum, sem hann tek- ur það. Einna föstust hefur ntér orðið í rninni hin gráglettna og sérlega raunhæfa mynd þokkahjúanna í Þeyr- inn nálgast. Þar hefur höfundi tekizt að segja langa og örlögríka sögu í mjög samanþjöpptiðu formi. Af liinum sögunum þykja mér tvær bezt gerðar, Kaldlynda nunnan og Sjálfskaparviti■ Niðurlagssetningarnar í þeirri fyrrl varpa ærið skýru og harmrænu Ijósi yí* ir konuna, sem þar er frá sagt, eðh hennar og sköp — og hliðstæðan, sem fram kemur í endi ltinnar segir okk- ur talsvert mikið. Sögurnar, sem gerast erlendis, Samastúlkan í skóginum °S Konan i kránni eru skýrar og stemn- ingsrikar myndir, og Þjónn stálsins — og þó einkurn Meðan karlinn sefur, sem vitna um skemmtilega hugkvæmm og benda til [tess, að á hinni hálu braut þess forms, sem þar er notað, geti höfundurinn fetað lengri leið en liann hefur farið að þessu sinni. Verð- launasagan, sem er í þessari bók, et læsileg og allvel skrifuð — en til þess að þeir atburðir og þau örlög, sem þal er.um fjallað, nytu sín til fulls, þyrhi dýpri bakgrunn þess óhugnanlega tíma og aldarfar, sem var uppspretta þeirra- Hún lætur ekki rnikið yfir sér, þessl bók, en það er meira í henni af hrein- um málmi heldur en í velflestu þvl’ sem sýnist stærra í sniðurn og borið fram af státni og stoltaralegutn ri*' burðum. Guðm. Gislason Hagalin■ Ragnheiður Jónsdóltir: MÍN LILJAN FRÍÐ. Skáldsaga. Helgafell 1961. Rúm tvö ár eru liðin, síðan skáld' sagan Min liljan fríð kom á bókamaik- að. Mér hefur fundizt einkennileg3 liljótt um þessa skáldsögu. Frú Rag11' lieiður hefur skrifað margar sögur og sjónleiki fyrir börn og fullorðna á síð- asta aldarfjórðungnunt, en að mínum dómi hefur skládsagan Mín liljan hí skilað henni sjálfri mestum afrakstr1 erfiðis síns og islenzkum bókmenntum bezta verkinu frá hennar hendi. Frú Ragnheiður hefur áður gh'mt við svipað söguefni í bókum sínum °8 hún tekst á við í þessari skáldsögm

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.