Eimreiðin - 01.01.1975, Page 2
I
bcblbq WKflaim
Þelr, sem ekki reykja, eru i meirlhluta hér á landi, og þess
vegna elga þeir a8 ráða lögum og lofum. Þetta fólk
hefur verið tillitssamt við reykingamenn og lítiS
kvartaS yflr þeim óþœgindum, sem mengun af tóbaksreyk
heffir valdiS þvi. En nú hafa vísindin lagt þeim
i hendur beitt vopn i réltindabaráttu þeirra meS þvi
aS sanna, aS reykurinn er heilsuspillandi
fyrir þá, sem eru i návist reykingamanna.
Þeím, sem ekki reykja, er sama, þótt reykingafólk valdi
sjáltu sér hellsutjóni, — en þaS hefur
engan rótl á aS eitra fyrir öSrum.
Reykingamenn ættu þvi aS sýna tiliitssemi og reykja ekkl,
þar sem annaS fólk er nærstall, — eBa velja
þann kostinn, sem öllum er fyrir be2tu:
Segja alveg skiliS vlS sigarettuna og leita eftir hollari
félagsskap.
SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR