Eimreiðin - 01.01.1975, Blaðsíða 79
ÉIMREIÐlN
HRAFN GUNNLAUGSSON rithöfundur fæddist. 17. júní 1948. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1969, lauk fil. kand.-prófi
í leikhúsfræðum og bókmenntum frá Stokkhólms háskóla 1973 og prófi
í fjölmiðlun frá Dramatiska Institutet 1974. Hrafn hefur gefið út þrjár
bækur, ÁSTALJÓÐ og DJÖFLANA 1973 og SÖGU AF SJÓNUM 1974.
AÐALSTEINN INGÓLFSSON listfræðingur fæddist 7. marz 1948. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1967, lauk prófi í mál-
vísindum og bókmenntum frá St. Andrews háskóla í Skotlandi 1971,
stundaði nám í listasögu á Ítalíu og Englandi og lauk prófi í henni frá
Courtauld Institute í Lundúnum 1974. Aðalsteinn kennir í Myndlista- og
handíðaskólanum og í Háskóla íslands. Hann skrifar um myndlist í vísi
og hefur annazt sjónvarpsþáttinn Vöku í vetur. Aðalsteinn hefur gefið
út ljóðabók, og er önnur væntanleg bráðlega.
P. OHEYEVITSJ fæddist í Póllandi 1946. Hann er nú landflótta, hefur
dvalið í Svíþjóð, Englandi og Þýzkalandi. Leikrit hans, sem öll eru
fremur stutt og framsækin. hafa verið flutt í tilraunaleikhúsum í Sví-
þjóð og Englandi, en hann yrkir einnig og semur smásögur. Leikrit hans,
KERFIÐ, var flutt í Reykjavík 1975 á nemendamóti Verzlunarskólans.
JÓHANN HJÁLMARSSON skáld fæddist 2. júlí 1939 í Reykjavík. Jó-
hann hefur gefið út 7 ljóðabækur, og er sú síðasta ATHVARF í HIMIN-
GEIMNUM 1973. Hann hefur einnig gefið út tvær bækur þýddra ljóða
og samið bók um íslenzka nútímaljóðlist. Jóhann er bókmenntagagnrýn-
andi Morgunblaðsins og skrifar þar einnig um listir og önnur menningar-
mál.
ÞORSTEINN ANTONSSON rithöfundur fæddist í Reykjavík 30. maí
1943. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1964. Þorsteinn
er nú rithöfundur í Reykjavík. Hann hefur gefið út skáldsögur og ljóða-
bók.
/--------------------------------------------------
ORÐSENDING
til þeirra, sem binda Eimreiðina inn
Unnt er að fá óskorin eintök af Eimreiðinni í afgreiðslu
Blaðadreifingar, Síðumúla 12, sírna 36720. Þá má benda
áskrifendum á, að þeir geta fengið óskorin eintök, ef
þeir taka fram, að þeir kjósi það heldur.
Y_________________________________________________y