Eimreiðin - 01.01.1975, Blaðsíða 76
EIMREIÐIN
76
á bænuin þeim. Hitt er einkennilegra, þegar ríkisútvarpið gerir
málstað slíkrar liðsforingjaldíku að sínum. í fréttaaukum, sem
ríkisútvarpið flutti fyrir kosningarnar í Portúgal, gat að heyra ,
fræðslu af slíku tagi. Friðrik Páll Jónsson sendi 22. apríl þau
líðindi heim á Frón, að „flestir“ væru „sammála um, að af-
skipti hersins séu nauðsynleg í hili lil þess að koma í veg fyrir
gagnhyltingartilraun“. Hverjir eru þessir „flestir“? Eru það
þau 80% kjósenda, sem kusu lýðræðissinnaða flokka, svo sem
Jafnaðarmannaflokk Soares eða Lýðræðislega þjóðarflokkinn?
Foringjar þessara flokka hafa lýst algerri andstöðu sinni við
stjórn hersins eftir kosningar. Eru það þeir stuðningsmenn
Krislilegra lýðræðissinna og Lýðræðislega miðflokksins, sem
ekki gátu haldið fundi vegna skrilsláta öfgamanna, sem her-
inn lét afskiptalausa?
Kosningarnar i Portúgal hafa tekið af öll tvímæli um það,
að almenningur þar hefur valið leið lýðræðisins. Liðsforingj-
arnir, sem Friðrik Páll fór fögrum orðum um í fréttaaukum
sínum, livöttu menn til að skila auðu, en það gerðu sárafáir.
Og Friðrik Páll telur „flesta“ sammála um réttmæti afskipta
hersins af stjórnmálum! í þeim fréttaaulca, sem vitnað var til, >
er ýmislegt annað aðfinnsluvert. Hann gat þess t. d. ekki, að
Kommúnistaflokknum er fjarstýrt frá Moskvu og hann þiggur
þaðan mikið fé. M. a. hirti eitt Lissahonblaðið mynd af stór-
ávísun frá einu fyrirtæki Ráðstjórnarríkjanna lil kommúnista.
Hins vegar ver hann tíma í að segja frá ofsóknum, fangelsun-
um og pyndingum á foringjum lians, fræðir landslýð á því, að
framhjóðendur kommúnista hafi samtals setið 440 ár í fang-
elsi! Og hlutdrægnin minnkar ekki, þegar hann segir frá
Lýðræðislega miðflokknum: „Meðal stofnfélaga er Valentino
Xavier Pintado. Hann var verzlunarmálaráðherra hjá Caetano
og lýsti yfir því 1973, að Portúgalir væru ekki búnir undir það
enn þá að stjórna landi sínu lýðræðislega. Vinstri flokkarnir
hafa gagnrýnt flokkinn mjög mikið. Miðdemókratar hafa lítið
haft sig i frammi á götum úti enda hafa oft orðið óeirðir á
fundum jieirra, siðast í gær í Norður-Portúgal“. Er tónninn
ekki auðheyrilegur?
Tilgangurinn með þessum aðfinnslum er ekki sá að bera i
bætiflákana fyrir einstaka stjórnmálaflokka i Portúgal. En
hins vegar er áróður Friðriks Páls i ríkisútvarpinu augljós:
Liðsforingjarnir og kommúnistarnir, sem hert hafa tök sín á
stjórnartaumunum, eru „lietjur alþýðunnar“ — þótt hún kunni
ekki að meta hetjurnar sem skyldi, eins og kosningarnar sýna.
En erindrekstur af þessu tagi á ekki heima sem frétt í ríkis-
J