Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1975, Side 16

Eimreiðin - 01.01.1975, Side 16
ÉIMREIÐIN eru byggðar á vafasömum, — jafnvel hneykslanlegum, — vinnu- brögðum , eins og að taka ekki tillit til starfsaldurs í útreikning- unum, en það hugtak gegnir lykilhlutverki i kenningum um mannauð16. Bandarísku hagfræðingarnir Samuel Bowles og Herbert Gintis hafa ráðist á vandann frá annarri lilið. Þeir viðurkenna, að skólaganga bæti starfsafköst (framleiðni) nemenda, þegar kemur út í atvinnulífið, og þar með tekjur þeirra, en færa rök fyrir því, að áhrif menntunarinnar séu með öðrum hætti en almennt er talið. f skóla læri menn ekki hagnýta iðn og því síður að hugsa, heldur eru þeir geltir andlega og gerðir að iðju- sömum og hlýðnum vinnuþrælum á auðvaldsbúinu. Þennan hagnýta eiginleika nefna þeir félagar á ensku docility syn- drom17. Einnig eru á kreiki margar kenningar, þar sem skólakerf- inu er líkt við heljarmikla síu, er síar yfirstéttina frá hisminu og að auki örfáa lágstéttarhesefa, sem ganga drottnurunum á hönd. Samkvæmt enn öðrum kenningum er skólakerfið (kostn- aðarsöm) aðferð til að finna þá, sem greindir eru og duglegir að eðlisfari, og setja á þá gæðastimpil til að spara atvinnurek- endum leitina (slundum nefnt sheepskin hypothesis á ensku). Allar eiga þessar kenningar sameiginlegt, að námið sjálft er talið gagnslaust í venjulegum skilningi, og verða þær ekki raktar frekar. Ástæðulaust er að grípa til furðukenninga vegna þeirra upp- lýsinga um tekjuskiptingu, sem komið liafa fram undanfarna áratugi. Ekki orkar tvímælis þrátt fyrir fullyrðingar Jencks og félaga, að mikil fylgni er með menntun og launum. Nýlega heimfærði handariski liagfræðingurinn Jacob Mincer t. d. meira en lielming af dreifingu árslauna í stóru úrtaki launafólks í heimalandi sinu upp á þrjár breytur, sem voru skólagönguár, starfsaldur og vinnustundir á ári18. Nefna mætti til viðbótar tugi, jafnvel hundruði, dæma þessu til stuðnings. Sú hugmynd, að ákveðið og órofanlegt samhengi sé milli aukins framboðs á menntuðu fóllci og launajafnaðar, er einn- ig úr lausu lofti gripin. Oft er t. d. litið á launabilið milli hópa með ólíka menntun og því haldið fram, að aukið framboð lang- skólamanna hljóti að lækka laun þeirra hlutfallslega miðað við aðra — skv. einfaldri framboðs- og eftirspurnai’greiningu. Jafnframt eiga laun liópa á lægri menntastigum að liækka, þegar vinnuframhoð þar minnkar. Raunin liefur ox-ðið önnur í O.E.C.D.-löndum. Þar hefur vinnuframboð háskólamanna aukist mjög ört frá lokum siðari heimsstyrjaldarinnai-, án þess 16

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.