Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 4

Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 4
274 Slcólalíf á miðöldunum. skóla, 700 í Rípum o. s. frv.; en kennslan var mjög ljeleg og notaðar til hennar harla ófullkomnar lat- ínskar kenslubækur, svo að þeir, sem vildu taka sjer betur fram, urðu að leita til annara landa, eins og islendingar gerðu í þá daga. Frá Danmörku leituðu menn einkum til París og Bologna, sjer í lagi til París; þar var jafnvel stofnað sjerstakt Collcgiuvi Dacicum (Daumörk var nefnd á latínu Dacia), og það bar til, að danskir námsmenn komust þar til svo mikilla metorða, að þeir voru gerðir að rektorum við þann fræga háskóla. Allt þetta sýnir, að þeir voru miklu fleiri en menn ímynda sjer almennt, sem leituðu sje fræðslu og menntunar á miðöldunum, og raunar miklu fleiri heldur en nokkurn tíma síð- an um siðabótina og til þessara tíma. Jafnhliða því, sem þessi mikli viðburður hafði gott í för með sjer, fylgdi honum meðal annars víða sá mikli ókost- ur, að þar með fór forgörðum öll sú skólaskipun, sem smám saman hafði komizt á stofn á löngum tíma, án þess að annað kæmi í þess stað beinlínis. þegar mannlegt fjelag fór að kornast í skorður apt- ur, eptir hin miklu umbrot og byltingar, er voru undanfari miðaldanna, tóku menn að hafa mætur á fróðleik og menntun aptur, og hvar sem kennari gaf sig fram, mátti hann eiga víst, að að honurn safnað- ist fjölmenn sveit lærisveina, sem óx óðum, ef nokk- uð kvað að honum. Hann varö því að byrja skóla sinn þar, sem lærisveinarnir áttu hægt með að afla sjer nauðsynja sinna; en með því að vandfenginn var staður, þar sem hinar tfðu landplágur á miðöld- unum, drepsótt og hallæri, eigi gerðu vart við sig að öðru hvoru, eru þess mörg dæmi langt fram eptir öldum, að kennarar og lærisveinar fluttust frá ein-

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.