Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 19

Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 19
289 Skólalíf á miðöldunum. vandamönnum þeirra var minnst um gefið, stunduðu t. a. m. bókvísi í stað lögfræði, eða sökktu sjer niður í guðfræði, í stað þess að gefa sig allan við Avicenna og Galenus. Svo fór meðal annara fyrir Petrarca; faðir hanns brenndi fyrir honum ljóðmæli hans og ljet hann flytja sig frá einum háskóla til annars, í þeirri von, að Ijóðagjörðar-ástríðan færi þá heldur iir honum. Hann var hlýðinn sonur föður sínum og gerði sjer allt far um að yfirbuga tilhneigingar sín- ar; hann lærði meðal annars corpus juris (lögbók Jústiníans) utanbókar, í þeirri von að komast þá rækilega niður í alla leyndardóma lögspekinnar; en það varð allt árangurslaust; hann var skáld og átti að verða skáld og ekkert annað. Svipuðu mótlæti varð Baccacio fyrir; faðir hans ætlaði fyrst að gera úr honum kaupmann og síðan lagamann, en hvorugt vildi lánast. Bn enginn tók þó annað eins út og hinn nafnkenndi fræðimaður Tómas Aquinas, fyrir það, að hann var svo hneigður fyrir hugsunarfræði og guðfræði. það var vandamönnum hans þvert um geð. Atti fyrst að fá hann"ofan af því með góðu; en er það dugði eigi, var liann lokaður inni í tvö ár og ýmist beitt ávítum, svipuhöggum eða vatni og brauði til þess að honum suerist hugur; loks var hann látinn vera saman við unga stúllcu og fi’íða, er átti að gera sjer far um að vokja ást hans á sjer; en hann stóðst það lævísa bragð jafn-öruggt eins og hrakninginn áður. þá þóttist móðir hans sjá loksins, að ekki mundi til góðs, að gera kenndi í brjósti um hann og stillti svo til, að honum veittist færi á að strjúka og koma fram vilja sínum. Tigin úngmenni áttu þar að auki aðrar verri þrautir yfir Iðunn. I. • 9

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.