Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 7

Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 7
Skólalíf á miðöldumim. 277 Sjaldan var mikið um gott samkomulag meðal há- skóladeildanna sín á milli, og utan endimarka kennslusalanna hagaði hver sjer hjer um bil eins og honum sýndist, bæði kennarar og lærisveinar. |>að var og eigi við öðru að búast; það var lítið um húsa- kynni, er voru sjerstaklega til þess ætluð að halda þar fyrirlestra, og þau fáu, sem til voru, voru ætl- uð fátækum stúdentum eingöngu. því var það al- gengast, að kennslan fór fram í herbergjum, sem kennarinn hafði leigt sjer til þess sjálfur, og var það fyrirkoinulag miður hentugt til að draga saman og efla vald kennaranna. Herbergi þessi lágu og opt á versta stað í borginni, og að vitni de Vitry kardínála var sumstaðar skóli uppi á lopti í sama húsinu, þar sem vændiskonur höfðu sína bækistöðu niðri. Líferni stúdenta var og engin sjerleg fyrirmynd. það var almennur siður, að margir lögðu saman og gerðu með sjer löguneyti, tóku yfir sig stjórnarmann eða formann, og var það optast einhver stiident, sem var kominn lengra áleiðis í námi sínu en hinir. J>eir höfðu til skiptis það hlutverk, einn í senn, að útvega vistir og matreiða; á meðan voru hinir að lesa með liandleiðslu formannsins. þ>etta, að hinir ungu mönn, sem þar á ofan höfðu sjer til varnar stórkostleg einkarjettindi, voru látnir ganga þannig alveg sjálfala, var mikið hættuspil; en þar á ofan bættist ýmislegt annað, er að því studdi að gera þá ósiðuga og slarkfengna. Fyrst og fremst voru æðimargir ekki námsmenn að öðru en nafninu einu, heldur í raun og veru flakk- arar, sem höfðu stúdentabúninginn fyrir skálkaskjól til þess að smeygja sjer undan ábyrgð fyrir mis-

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.