Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 30
300 Slsólalíf á miðöldunum.
gekk það sem eptir var til Salzborgar. Hjela var
á jörðu, en strokumaður slcólaus og húfulaus ; treyj-
an langt of stutt og gatslitin, og var því lítið skjól
að henni. þess konar þrautir var hann þó vanur
við og hjelt öruggur leiðar sinnar. Hann ætlaði
að sníkja sjer út far ókeypis niður eptir ánni
frá Salzborg til Yínar, en það tókst ekki. En
ekki þorði hann að snúa aptur rakleiðis til Miin-
chen, og hjelt til Preissing ; þar var skóli. Eptir
ir nokkra dvöl þar var honum sagt, að »stóri
brautingiun« frá Munchen væri að leita hans,
með atgeir í hendi. Hann flýði þegar í dauð-
ans ofboði og hjelt til Úlm, hitti þar ekkjuna, er
hafði miskunnað sig yfir hann áður, og var þar vel
tekið; hún skaut skjólshúsi yfir hann heilt skólaár.
þá komst frændi hans á snoðir um, hvar hann var
niður kominn og fór þegar að leita hann uppi. það
var eitt kvöld, að Platter frjetti til ferða frænda
síns, að hann mundi kominn til bæjarins, og beið
hann þá eigi boðanna og flýði sem fætur toguðu á-
leiðis til Iíonstanz. »Honum var töluverður tekju-
missir að mjer«, segir Platter ; »jeg hafði haft ofan
af fyrir honum að miklu leyti 1 mörg ár, og því var
honum ekki láandi, þó hann sækti fast eptirróður-
inn«. En þeir hittust aldrei eptir þetta, og vita
menn ekki, hvað um Pál varð á endanum. Máske
hann hafi lagazt dálítið og orðið prestur, eins og svo
inargir aðrir slarkarar, sem Platter getur um, er
komust á hempu, þótt þeir hefðu eldcert til þess að
bera ; eða þá að hann hefir verið brautingi alla æfi
og útvegað sjer allt af nýja áburðarklára koll af kolli
til að þræla út á flakki sínu háskóla frá háskóla.
þegar Platter kom yfir um brúna hjá Konstauz