Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 38

Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 38
308 Moses Mendelsohn og Friðrik mikli. einatt sitja við hlið sér við borðið. Einu sinni við slíkt tækifæri bar svo til, að sendiberra einhvers smáríkis á |>ýzkalandi ætlaði að reyna fyndni sína á Mendelsohn og gjöra hann hlægilegan, en Men- delsohn varð ekki orðfall, en svaraði fyndið, svo að sendiherrann varð að athlægi. Sendiherrann reidd- ist, og bar sig upp undan því við Eriðrik, að Mendel- sohn skyldi vera boðinn með slíkum höfðingjum, sem hann væri auðsjáanlega of lítilfjörlegr til að hafa samneyti við. Konungr svaraði stutt: »Merldelsohn er gestr minn engu síðr en þér, og ef þér ætlið að fara að slá yðr til riddara á honum í orðakasti, þá verðið þér líka að gjöra yðr að góðu afleiðingarnar, ef hann er fyndnari en þér«. »Já, en af öllu má of mikið gjöra, yðar hátign«, svaraði sendiherrann ; »Mendelsohn kann sér ekk- ert hóf, og ég er viss um, að hann hikaði ekki við að meiðyrða yðar hátign, ef honum fyndist yðar há- tign hafa stygt sig«. »En mér dettr aldrei í hug að styggja hann«, svaraði konungr, »en þó svo færi, er ég viss um, að hann mundi aldrei meiða mig«. »Eigum við að veðja um það ?« »Já, það skal ég veðja um«. »Jæja«, svaraði sendiherrann ; »ef yðar hátign vill gjöra það, sem óg bið um, þá skal óg vinna það veðmál«. »Hvað viljið þór að ég gjöri ?« »Vill yðar hátign næsta sinn, sem við verðum boðnir til kvöldverðar, skrifa á miða : vMendelsohn og annara fraigra manna. Af rituin lians er hvað nafn- kunnast „Phadon, eðr um ódauðleik súlarinnar“, Pýð.

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.