Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 12

Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 12
282 Skólalif á miðöldunum. áhyggj u og skapraun, og hún varð að lægja sig til muna áður en háskólinn fengist til að gleyma þess- arí ávirðingu. Að ekki var gaman fyrir einstaka menn að ganga á hluta hins lærða stórmennis, það vottar dæmi greifans af Savoisy. Haun var einn af vildarmönn- um Karls konungs sjötta og mátti sín mjög mikilg. Einhverjir skjólstæðingar hans höfðu komizt í rysk- ingar við nokkra stúdenta, í hátíðlegri prósessíu. Stúdentarnir höfðu upptökin. þjónustumenn greif- ans eltu þá á flótta inn í kirkju og börðu þá þar. Svo voldugan sem greifinn átti að, þar sem var kon- ungur sjálfur, varð hann fyrir stórútlátum fyrir þessar sakir, og varð að þola það bótalaust, að hiis hans í borginni, veglegt skrauthýsi, var rifið að grundvolli. þett var þungur kostur. þó urðu þeir hálfu ver úti, borgarstjórarnir í París, ef þeim varð einhvern tíma á að fara méð skólagengna þorpara eins og önnur illmenni og bófa, ef þeir höfðu framið eitthvert sví- virðilegt ódæði. Árið 1309 var stúdent höndlaður, dæmdur og af lífi tekinn fyrir manndráp, eins og það hefði verið óbrotinn, óskólagenginn skálkur. Borg- arstjórinn, er hafði látið rjettvísina ráða og eigi kunn- að að gera mun á lærðum mönnum og dónum, hann fjekk að kenna á einfeldni sinni. Allri vísinda-iðju var hætt þegar í stað, og öllum kennilýð borgarinuar stefnt saman í Bartolómeus-kirkju. jpeir flykktust þangað allir; dómprófastar, prestar og kanúkar lögðu lag við háskólalýðinn og gengu í feykilegri prósessíu þangað sem borgarstjórinn átti heima, með ótoljandi krossa á lopti og merki í fylkingarbroddi. þeir skutu hring um húsið og tóku til að æpa í sífellu :

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.