Iðunn - 01.12.1884, Qupperneq 21

Iðunn - 01.12.1884, Qupperneq 21
1 Skólalíf á miðöldunum. 291 Að þetta eru engar ýkjur hjá Cervantes, má sjá greinilega á eptirfarandi lýsingu á æfikjörum fátseks skólapilts, eins og þau voru um lok miðaldanna. Thomas Platter var frægur lærdómsmaður á 16. öld, samtíða Lúter og Zwingli. Hann var fæddur í St. Gallen 1 Sviss. Hann var geitahirðir í æsku í átthögum sínum, þangað til hann var 9 vetra. En móður hans, sem var fátæk ekkja, langaði ákaflega mikið til, eins og margar mæður í þá daga, að einhver af sonum sínum yrði prestur; því það var almenn trú í þá daga, að ávarp engilsins við Maríu : Blessuð sjert þú meðal kvenna, ætti við allar mæður, er ættu prest fyrir son. Móðir Tómasar hafði nú bezta trú á honum af sonum sínum til slíkra hluta og kom honum í skóla hjá presti í nágrenni við sig. Hann lærði þar ekki annað en dálítið f söng, með því að það var klerki arðsvon ; því undir eins og lærisveinn- inn var farinn að geta haft rjett yfir eitt sálmlag, var hann sendur út til þess að syngja fyrir dyrum manna til ölmusu sjer. Klerkur skipti sjer að öðru leyti ekki mikið af lærisveini sínum; hann gerði ekki nema hárreytti hann eða kippti í eyrað á honum, þegar illa lá á honum. Móðir Platters sá, að þessi kennsluaðferð mundi skammt duga til að gjöra prest úr syni sínum. Hún tók þá það ráð, að reyna að koma honum í munaðarleysingjaskóla. Prændi drengsins, ér lijet Páll Sumermatter, piltur um tví- tugt, stór og sterkur, og sem hafði verið í skóla nokkur ár, var þá staddur þar í þorpinu í kynnisför. Honum gaf ekkjan oitt gyllini til að taka Tómas litla að sjer og koma honum í stöfun um alla leynd- ardóma námsmannasamkundunnar. 19*

x

Iðunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.