Ægir - 01.01.1913, Síða 6
4
ÆGIR
Balkanskaganum og pólitiskum óeirðum
samfara því.
Skipabyggingar heimsins hafa síðustu
15 ár verið sem lijer segir:
Bygð á árinu, brúttó smál. Farist eða höggvin , , UPP» bruttó smal. Árleg við- koma við skipastólinn, bruttó smál.
1897 1332000 712000 620000
1898 1893000 733000 1600000
1899 2122000 727000 1395000
1900 2304000 752000 1552000
1901 2617000 746000 1871000
1902 2503000 740000 1763000
1903 2146000 744000 1402000
1904 1988000 721000 1267000
1905 2515000 725000 1790000
1906 2920000 762000 2158000
1907 2778000 794000 1984000
1908 1833000 794000 1030000
1909 1602000 868000 734000
1910 1958000 916000 1042000
1911 2650000 863000 1787000
Eftir mjög áreiðanlegum skýrslum er það
reiknað út, að milii 200000 og 300000 brúttó
smálestir sjeu mánaðarlega settar á flot í
heiminum, og ef öll þessi skip eiga að
hafa nóg' að starfa án þess að farmgjöld
lækki, verði flutningsþörfin að aukast
minst um 20—30 miljónir smálesta á ári,
fram yfir það sem nú er.
Þrátt fvrir þótt alt úllit sje fyrir að nú
i næstu mánuði sje nóg að flytja fyrir
þennan sívaxandi skipastól, þá virðist þó
aukinn fíutningur elcki vaxa í hlutfalli við
þann skipafjölda, sem bætist við jafnt og
þjett.
Það er þess vegna útlit fyrir, að há-
markinu sje náð hvað viðvíkur farm-
gjöldum, og að það líði þess vegna ekki
iangur tími þangað til að farmgjöldin
lækka, og þótt árið 1913 verði gott ár
fyrir útgerðarmenn, þá verði það ekki
eins liagsælt og árið 1912.
Maður liefði nú mátt imynda sjer, að
ísland hefði staðið vel að vígi, þar sem
það var búið að trvggjá sjer fyrirfram
flutninga og versluuarsamgöngur um svo
langan tíma með 10 ára samningum við 2
fjelög; en reyndin varð alt önnur; annað
Qelagið biður um uppgjöf á samningum
strax í þingbyrjun 1912 og fær lausn, en
hitt — Sameinaða gufusldpafjelagið —
hækkar fargjöld og flutningstaxta.
Svona er þá ástandið í byrjun ársins
1913, að þrátt fyrir okkar 10 ára samning
verður staðreyndin sú, að við liöfum í raun
og veru engan samning þegar við þurftum
þess helst með.
Þann 16. janúar síðastliðinn boðaði
Stúdentafélagið til fundar og bauð til
nokkrum kaupsýslumönnum bæjarins, og
var fundaretni: »Samgöngumálið og stofn-
un islensks gfuskipafjelags«. A fundinnm
mættu margir, og hóf Bjarni Jónsson við-
skiftaráðanautur umræður; flutti hann langt
erindi og snjalt og sýndi fram á þau hörðu
kjör, er við yrðum við að búa, hvað sam-
göngur snerti, og hvatti menn til að gang-
ast fyrir samtökum í þá átt, að stofnað
yrði íslenskt gufuskipafjelag, sem annaðist
samgöngur milli íslands og útlanda. Margir
aðrir töluðu í líka átt, bæði framkvæmdar-
stjóri Thor Jensen, Brynjólfur kaupmaður
Bjarnason og fleiri.
Herra Thor Jensen Ijet þess getið, að
nokkrir menn hjer í bænum hefðu nú um
nokkurn tíma haft þetta mál til ihugunar
og mundi innan skamms birtast tillögur
þeirra opinberlega.
Tillaga var samþykt þess efnis, að skora
á menn að styðja að stofnun íslensks gufu-
skipafjelags. (Frh.).
Straœðgæslan og Crollarar.
Oft heyrist kvartað imdan þvi, að þetta
eina skip sem við höfum hjer við land