Ægir - 01.01.1913, Page 21
Æ G III
19
{ ýmsum löndum eru gerðar ólíkar
kröfur til verkunar og útlits fisksins, og
er því gott að kunna, að fullnægja þeim
bæði hvað snertir bragð útlit og umbúðir.
Landið launar nú manni, sem ætti að
vera leiðbeinandi þjóðinni í þessu efni,
því líklega hefir hann liugboð um það,
að markaður fyrir ýmislega verkaðan fisk
er gróðavænlegt fyrir sjómenn og kaup-
menn landsins.
Þegar jeg frjetti til Noregs að hjer væri
launaður verslunarráðunautur, þá hjelt jeg
að liann mundi kynna sjer góða sölustaði
fyrir ýmislega verkaðan fisk og verkunar-
aðferð, sem liann svo gerði landsmönnum
kunnar.
Einnig hjelt jeg að hann, í blaði sínu,
muudi skýra frá fiskverði ýmsra tegunda i
Ítalíu, Spáni, London, Hull, Hamborg og
Antwerpen. Á alla þessa staði senda Norð-
menn fislc sinn. Alslaðar er eftirspurn eftir
fiski, svo hægt er að selja hann, ef bragð
og útlit er eins og kaupandinn vill hafa
hann.
Jeg hef verið 20 ár í Noregi, og oft unn-
ið þar að fiskverkun, ekki aðeins á Spán-
ar fiski, lieldur að öðruvísi verkuðum fisk
t. d. »Labrador« íisk, sem svo er nefndur
þar. Til þess er valin stæ^sli og feitasti
þoskurinn 6—7 pd að þyngd ílattur. Hann
er þvegin og svo saltaður í lagarhcldar
tuunur með sterkum pækli. Mjer var sagt
að þegar fiskurinn væri svo slór að ekki
færi í tunnuna fleiri íiskar en 30—35, þá
fengist fyrir hana 60—70 krónur.
Til áðurnefndra staða senda Norðmenn í
kössum reyktan fisk, og beinlausan (Hús-
holdnings) fisk, Eins og nafnið bendir til
eru öll bein tekin úr fiskinum, dálkurinn
allur með sporði og þunnildabein, svo er
hann vandlega þvegin, og saltaður með
finu salti um leið og hann er lagður í
kassa ti! útflulnings, en sá iiskur cr ekki
til geimslu, heldur til að seljast fljótlega,
og þykir sá fiskur sælgæti.
Reyktur fiskur er saltaður fyrst og þveg-
inn svo áður en liann er reyktur og þar
eftir sendur burt í kössum.
Litið saltaðan fisk og hálf-þurkaðan
senda Norðmenn einnig í kössum og selst
hann oft vel.
Ilr. Hjaltason.
Erlendis
Nýr fi8bur í Þýskalandi.
Ársskýrsla um kenslu í inatarlilbúningi
fiskjar sem dr. Henking stendur fyrir, er
komin út í Þýskalandi, og sýnir að mjög
mikið hefir verið starfað í þeim tilgangi að
útbreiða þekkingu á nytsemi fiskjar til
manneldis.
Frá því í nóvember 1910, þar til í júlí
1911, hefir verið haldin 263 kensluskeið í
54 bæjum fyrir 12113 lærisveinum.
Frá því i október 1911 til byrjun júlí-
mánaðar 1912 voru lialdin 474 kensluskeið
i 120 bæjum fyrir 23962 lærisveinum.
Þessi aðferð hefir mjög svo mikla þýð-
ingu fyrir útbreiðslu fiskverslunar á Þýska- /'T
landi; þessi kensla hefir mjög mikinn kostn-
að í för með sjer en samt sem áður má
fullyrða að því fje sem varið er í þessu
augnamiði er vel varið, því með því er
tvent unuið, í fyrstalagi að kenna fólki að
búa til holla og ódýra fæðu og i öðrulagi
að slyðja að fiskiveiðum Þjóðverja og versl-
un annara landa með íisk af öllum teg-
undum.
Sem dæmi hvað fiskur atlagður af botn-
vörpuskipum getur verið ódýr&í Þýskalandi
skal þess getið, að ekki ósjaldan hefur það
borið við að þorskur, langa, upsi, steinbit-
ur og keila, hefir verið seld á nokkra aura