Ægir - 01.01.1917, Page 6
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS
10. árg. || R e y k javik. Januar, 1917. || Nr. L
Ávarp.
Heiðruðu lesendur »Ægis«!
Þökk fyrir gamla árið og gleðilegt ný-
ár! Þessi 10. árgangur »Ægis« fer vel á
stað, þar sem hann færir lesendum 2
ritgerðir eftir menn í fjarlægum héruðum.
Vonandi verða þær fleiri á árinu, enda
er það sjálfsagt að ritið fái slíkar rit-
gerðir og að sjómenn hafi einhver áhuga-
mál, sem birtandi eru á prenti. Það er
verið að bera saman landbúnaðinn og
sjávarútveginn, berið saman »Búnaðar-
ritið og »Ægir« og athugið mismun á
fjölda þeirra, sem í þau timarit rita.
Þessir 2 menn, sem ritgerðirnar hafa
sent, eiga þakkir skilið að hafa riðið á
það vað, sem sjómenn virðast hafa forð-
ast, þ. e. að rita nokkuð i »Ægi«, silt
eigið og eina málgagn. Með því að fá
lýsingar eins og hér hefir verið gert, frá
hinum ýmsu verstöðvum landsins, getur
»Ægir« með tímanum orðið merkilegt
rit, þar sem bera má saman eftir mörg
ár hvernig er og hvernig var, og draga
út af þvi, af hverju hnignun eða fram-
farir stafi og haga sér eftir þvi. Menn
skulu ekki hika við að senda af ótta við
að ritháttur eða stafsetning sé ekki í lagi.
Alt slíkt verður lagað hér, sé annað þess
eðlis að ritið geti flutt það. Ritsljórinn.
G-oðafoss-strandið
30. október 1916.
Þótt síðastliðinn októbermánuður líði
fólki úr minni eins og aðrir mánuðir er
líða, þá mun hann þó lengi geymast í
hókum vátryggingafélaga, því þann mán-
uð vildi hér til hvert slysið á eftir öðru.
Fyrst sökk »Skallagrimur« hér á Reykja-
víkurhöfn, svo sigldi »Marz« á land við
Gerða í Garði og ónýttist algerlega og
svo er flutnings- og farþegaskipinu
»Goðafossi« siglt upp í klettana við
Straumnes.
Öll þessi slys hljóta að rýra álit ís-
lenzkra yfirmanna í allra augum og ekki
sizt Goðafoss-slysið; það var svo klaufa-
legf og hraparlegt, að menn stóðu hissa,
að eins störðu þegar fyrstu fréttirnar
komu, skildu ekki i að nýju, vel út-
reiddu skipi, máttarstólpa þjóðarinnar á
þessum örðugu tímum, væri siglt á land
á þessum tiltekna stað, en svo kom
vissan, og það mátti sjá mörg alvarleg
andlit, morguninn sem leifunum af hinu
fallega skipi var skipað hér upp á planið.
Svo byrjuðu sjóprófin og má lesa þau
í öllum blöðum landsins og þarf því
enga endurtekningu hér.
Við þetta próf kom það fram, að
skipið hefði verið 2 kvm. af Rit eftir
ágizkun, og að stefnan þaðan hafi verið