Ægir - 01.01.1917, Síða 11
6
ÆGIR
mundi vera gerlegt að bæta þar svo
höfn á einhverjum þessum stað, að sem
flestir mótorbátar Austfirðinga gætu stund-
að þar veiðar að vetrinum og vorinu,
yíir þann tíma, sem þeir annars standa
uppi á landi.- Ég veit að það dylst eng-
um kunnugum, að það mundi gerbreyta
— til batuaðar — aíkomu mótorbáta-
útvegsins hér á landi.
Síðastliðinn vetur vakti okkur hér sér-
staklega til umhugsunar um þetta, því
svo vildi til, að það var óvenju langur
góðviðriskafli í marz síðastliðinn vetur,
og þó bátarnir séu litlir hér, þá lögðu
menn í það að sækja suður í Lónsbugt
þegar fréttist austur að árabátar af Papós
hefðu tvíhlaðið undanfarna daga, alveg
upp undir landi. En þó að það næðist í
nokkra góða róðra í þetta sinn, þá getur
maður alls ekki búist við að fá slíka tíð
oft, máske ekki meir en eitt ár af tiu.
Héðan að austan verður ekki sótt nema
í góðri tið. Til þess eru bátarnir langt
of litlir, og vegurinn of langur, tíðin
ræður þar mestu um, því í góðri tíð má
næstum segja fara alt, en í óstiltri tíð á
litlum bátum, yfir langa og mjög óhreina
leið og algerlega vitalausa, gæti maður
helst sagt að ekki væri farandi neitt.
Því miður er ég ekki nægilega kunn-
ugur þessum stöðum sem ég hef tilnefnt
sem hafnarstaði, til þess að geta lýst
þeim til hlýtar, hef nokkrum sinnum
komið á Hornafjörð, en að eins séð hina
staðina frá skipum og mótorbátum, en
ég hef altaf haft þá skoðun, að mesti
gallinn á Hornafjarðarós væri straumur-
inn, en ég er líka fastlega þeirrar trúar,
að það mætti komast að miklu eða öllu
leyti í veg fyrir hann með þvi, að fá
útrensli vatnanna annarstaðar en um
ósinn, þ. e. út i gegnum sandana og það
mundi máske vera framkvæmanlegt með
steyptum stíflugörðum og skurðum. Og
um leið og straumurinn væri fyrirbygður,
þá mundi ég helst líkja Hornafjarðarós
við leiðina inn á Vestmannaeyjahöfn.
Um Papós og Hvalneskrók hafa kunn-
ugir menn sagt mér, að með ekki mjög
miklum tilkostnaði mundi mega gera þar
dágóðar hafnir.
Mér finst það ekki vera neitt ósann-
gjarnt, þó farið væri fram á það við
þing og stjórn, að þessir staðir væru
skoðaðir, og ef til kæmi veftt fé til hafn-
argerðar á þeim stað, sem líklegastur
þætti, þar sem um slíkt framtíðar-spurs-
mál er að ræða fyrir einn Qórðung
landsins.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar
að sinni, en vona að þetta málefni fái
bæði marga og góða stuðningsmenn, sem
fylgi því fram, þar til annaðhvort er
fengin vissa fyrir þvi, að ekki sé hægt
að gera höfn á neinum áðurnefndum
stað, eða þá til komin er þar voldug
mótorb.-höfn, og mundi þá að sjálfsögðu
þjóta þar upp eitt af meiri kauptúnum
og verstöðum landsins.
Fáskrúösflrði, 15. nóv. 1916.
Stefán P. Jakobsson.
Súgandafjörður.
Hr. ritstjóri!
í 9. tölubl. Ægis þ. á. skorið þjer á
landsmenn að senda Ægi ritgerðir, lýs-
ingar á ástandi i veiðistöðvum og annað,
er orðið gæti til gagns og fróðleiks.
Mér hefir því hugkvæmst að senda
yður línur þessar, til þess að bæta ofur-
litið úr ókunnugleika Ægis lesenda, hvað
Súgandafjörð snertir. Fjörðinn, sem á
flestum landabrjefum Islands er sýndur