Ægir - 01.01.1917, Blaðsíða 17
12
ÆGIR
ist vel. Hún er ekki mjög langt frá sjó,
og eigi mjög bratt upp að því sem grafið
hefir verið í hana. Ut á höfnina mun
mega flytja úr henni, en í sama mundi
jþá lenda, þegar þangað kæmi, eins og
fyrir sjáverútveg Suðureyrar; það er því
ein ástæðan enn, til að tryggja sem best
höfnina.
Eins og ég hefir lýst því hér á undan
er nú útlitið í Súgandafirði; þar mun
naumast miklu hallað, því heimildir hefi
ég góðar fyrir umsögn minni, þó eigi
hafi ég- dvalið hér lengi. Fá kauptún
landsins munu hafa eflst fljólara en Suð-
ureyri, enda munu fá verða fljótari að
hverfa úr sögunni en hún, ef illa er á-
haldið. Nýlega sagði maður við mig, er
við vorum að tala um horfur Súganda-
fjarðar: »Það verður bezt, að flytja sem
fyrst til ísafjarðar eða Flateyrar, þvi
fjörðurinn ykkar á enga framtið framar«.
Mjer varð fyrir að spyrja, hvort hann
héldi að það borgaði sig fyrir þjóðina,
að oífra Súgandafirði, með öllum hús-
eignum og mannvirkjum, til að efla þessa
tvo kaupstaði. Hvers vegna hefði hann
ekki nefnt Höfn á Ströndum eða ein-
hverja staði, þar sem hvorki væru til
húseignir eða mannvirki? Þessu lét hann
ósvarað. En ég ber það traust til þings
°g þjóðar, að rétta okkur Súgfirðingum
hjálparhönd áður en kemur til að svara
þeirri spurningu, og vona því að Suður-
eyrarhöfn verði ein hin fyrsta í röðinni,
er þingið lætur taka til athugunar.
Suðureyri, 29. desember 1916.
Hallbjörn E. Oddsson.
Umræðnr nm fisktollinn
í franska þinginu 1916.
(Frh.).
Meðalverð eins kg fæst með því að
deila brúttósöluverðinu (sem tiltekið er
svona hér um bil af forstjórum lög-
skráninganna) með kilógrammafjölda
þess þorsks, er upp hefir verið skipað í
höfnunum.
Fyrir ófriðinn, er nóg var af fiski og
fengust yfir 60 milj. kg árin 1909 og
1910, jókst útflutningurinn og fór jafnvel
fram úr 30 milj. kg. En ef landar vorir
fiska nú litið, t. d. minna en 50 milj.
kg eins og árin 1906, 1907, 1912 og 1913,
minkar útflutn. og nær ekki 15 milj. kg,
svo að helmings munur gat orðið á
honum, þvi að altaf var haft nóg til
neyzlu í Frakklandi.
Síðan ófriðurinn hófst, hefir erlendum
kaupsýslumönnum tekizt að selja i Frakk-
landi svo og svo mikið af fiski (»fisk,
sem hægt er að tiltaka, hve mikill var«).
Ár Kg Tonn
1914 var það 43,300 eða 43 af þorski
1915 » » 17,600 » 17 » »
1916 » » 360,000 » 360 » »
(frá 1. janúar til 1. apríl).
Meira að segja hefir landstjórnin ný-
lega keypt 3 milj. kg eða 3,000 tonn
af þorski frá Noregi fyrir 1 fr. 66 hvert
kg og er tollurinn ekki þar í falinn.
Með þvi að ekki var úflutt nema 5
milj. kg af þorski árið 1915, var þá eftir
i landinu því sem næst jafnmikið og
1914. En í smásölu gat fiskur ekki feng-
ist nema með afarverði og fólkið aflaði
sér annarar fæðu; neyzluþörfin hafði
ekki eytt öllu því sem inn var flutt og
fyrst þegar fór að koma fiskur, er veidd-