Ægir - 01.01.1917, Qupperneq 19
14
ÆGIR
í maí 1916: i Bordeaux 2 fr.; í Montaub.
2 fr. 20; í Saumur 2 fr. 50; i Tarbes
og Tours 3 fr.; í Beauvais og Biar-
ritz 2 fr.; í Nizza 1 fr. 60 og í Tou-
lon 2 fr. 95.
Af þessum tölum má ráða verðhækk-
unina frá því er ófriðurinn hófst. En
hver getur nú verið orsök svo mikillar
hækkunar á gangverði? Hverjir eru þeir
miðlar, sem hafa svo mikinn ágóða?
Hví er verðið svona mismunandi? Verzl-
unarmálaráðherrann heíir ekki getað
svarað þessum spurningum til fullnustu.
En samkv. ákvörðun, er gerð var 29.
júní 1916, hefir hann »skipað nefnd til
þess að ihuga alt það, er að fisksölu
lýtur, sérstaklega að gera nákvæma grein
fyrir öllum einstökum atriðum i sölu-
verði þessarar vöru og að ákveða eða
meta þann fiskforða, er fyrir hendi sé
til neyzlu.
Tollurinn.
(Tillaga hr. Constant).
Samkv. lista yfir inn- og útflutnings-
skatta, sem færðir eru inn i tollskrána,
er frakkneskur fiskur undanþeginn tolli.
En af erlendum fiski, er harðfiskur, salt-
fiskur, reyktur fiskur tollaður, og eftir
meðaltaxta, verður að gjalda 60 fr. af
hverjum 100 kg, en að minsta kosti 48
fr. (þar með er talinn klippfish). Af
stockfish skal greiða að jafnaði 48 fr. af
100 kg, en að minsta kosti 15 fr.
Samkv. þeim fyrirmælum, er tollþjón-
arnir hafa fengið, geta ákvæðin um fisk-
toll að eins náð til harðfisks eða græn-
fisks, sem er mjög saltaður, eins og hann
er útbúinn í fiskstöðvunum. Um nýjan
þorsk (cabillaud, cabliau) er það að segja,
að hann hlýtir sömu lögum og aðrir nýir
sjávarfiskar. Langa (lingue, morue lon-
gue) sætir einnig sömu meðferð og sá
eiginlegi þorskur (morue franche). Lifur
og tunga upp úr salti reiknast í þessu
efni sem fiskurinn sjálfur. Loks er þess
að geta, að til stockfish telst að eins sá
fiskur, er ekki hefir meira en 12% af
salti.
Hr. P. Constant skýrði tollmálanefnd-
inni frá því 20. april 1916, að fækkað
hefði skipum þeim, er gerð væru út til
fiskjar og fórust honum orð á þessa leið:
»Af þessu hefir svö leitt, að sá fiskur,
sem áður var seldur fyrir 60 fr. 100 kg,
kostar nú 160 og 180 fr. Meira að segja
eru þrjú skip nýbúin að selja afla sinn
fyrir 200 fr. 100 kg verzlunarráðinu, sem
ætlar að viðhalda verðhækkuninni«.
Af þessu hefir hann svo ályktað, að
lágmarkstollur, sem er 48 fr., verði að
færast niður í 5 fr., meðan á ófriðnum
stendur.
Athugasemdir þær, er gert hafa fulltrúar
flskveiðanna (stórveiðanna) og
flskverzlunarinnar.
Fulltrúar fiskveiða og fiskverzlunar
voru á fundi tollmálanefndarinnar þ.
25. maí og var það einróma álit þeirra,
að falla bæri frá uppástungu hr. P. Con-
stant af þessum ástæðum:
1° Enda þótt þorskurinn sé nauðsynja-
vara, er hann engan veginn óhjákvæmi-
legur til neyzlu, enda skuli fiskverzlunin
frjáls sem áður.
2° Fiskforðinn sem nú er og aflinn
1916 virðast sem áður algerlega full-
nægja neyzluþörfinni.
3° Aðferðin, sem stungið er upp á
(frumvarpið), mundi skerða hagsmuni
landsins, með því að rýra tekjur rikis-
sjóðs, með þvi að gefa tilefni til þess,
að gull flyttist úr landinu og með þvi
að gera víxilgengi vort ískyggilegt.
4° Hún myndi skerða hagsmuni sjó-
manna jafnt og útgerðarmanna, þvi að
þeir eru svo nátengdir.