Ægir - 01.01.1917, Page 20
ÆGIR
15
5° Rað fer fjarri, að nokkur vissa sé
fyrir þvi, að neytandi hafi nokkurn hag
af þessu.
6° Ríkið myndi fremja órétt, ef það
eins og á stóð, þegar gert var út til ver-
tíðarinnar 1916, færi alt í einu að kippa
að sér þeirri verndarhendi, er það hefir
haldið yfir þeirri iðnaðargrein innlendri,
sem mesta áhyggju hlýtur að liafa útaf
gróða stórhættulegra keppinauta.
Því næst voru þeir beðnir að gefa ná-
kvæmar upplýsingar um verðið i heild-
sölu og smásölu, og létu þá í té svofelda
skýrslu:
Heildsöluverð á fiski árin 1914 og 1915.
Heildsöluverð á frakkneskum fiski tvö
síðasliðin ár, hefir verið:
1° Frá útgerðarmönnunum (söluverð
til kaupsýslumanna):
Árið 1914 80- 90 fr. 100 kg
» 1915 120-130 » 100 »
2° Frá kaupsýslumönnum í Bordeaux
(söluverð til smásala):
Árið 1914 90-100 fr. 100 kg
» 1915 120-180 » 100 »
Ofangreint verð tekur ekki lil fisksölu
úr Norðurhéruðunum, þar eð enginn út-
gerðarmaður í Dunkerque-Gravelines tók
þátt í vertíðinni 1915. Lágmarksverðið
nær til smáfisksins, sem lítið þykir til
koma í Frakklandi og verða handhafar
hans að koma honum út á erlendum
markaði. En hámarksverðið er miðað
við stóra fiskinn, sem er uppáhalds- eður
viðhafnarvara og er aðallega seldur í
Paris.
Fiskverðið fer einnig nokkuð eftir
neyzlustöðvunum. Og eftir ílutningsleið-
inni og ákvörðunarstöðunum þarf auð-
vitað að þurka vöruna meira eða minna,
en af þessari sérstöku meðferð leiðir
auðvitað verðhækkun.
Verðhækkun framleiðenda (útgerðar-
manna) árið 1915 verður nál. 45°/o, ef
miðað er við söluverðið 1914. Og þessi
verðhækkun svarar til aukinna útgjalda
útgerðarmanna. Heildsalarnir, er kaupa
fiskfarmana af útgerðarmönnunum, hafa
hækkað söluverð sitt til smásalanna
(matjurtasalanna) í hlutfalli við inn-
kaupsverð (lil útgerðarmannanna).
Smá8öluverð.
Framleiðendum og kaupsýslumönnum
er ekki vel kunnugt um verðhækkun
smásalanna við neytendur.
Skýrsla um meðalverð á nýjum fiski
í helztu borgum á Frakklandi, að fiski-
höfnum undanteknum, sem birt hefir
verið síðan í júlímán. 1914 af skrifstofu
fiskveiðanna (verzlunarflotaráðuneyti),
sýnir eftirfarandi verð á saltfiski á tima-
bilinu 1915-1916:
1915: frá 17. apríl til 21. maí 1 fr. kg
1916: » 15. » » 21. » 2 fr. 25 kg
» » 22. » » 28. » 2 » 24 »
» » 29. » » 6. » 1 » 90 »
Verðhækkun smásalanna verður þannig
því sem næst 100°/“. Þó ber þess að geta,
að það er sérstaklega afbragðsfiskurinn,
þ. e. sá stóri, sem seldur er háu verði
hjá smásölunum. Fyrir ófriðinn var jafn-
vel framhluti af þessum atbragðsfiski
seldur fyrir 1 fr. 50 til 1 fr. 60 hver
500 gr., og rann út; þetta var einmitt á
sama tíma og fiskeftirstöðvarnar annars
voru seldar í smásölu á 40—60 centimes
hver 500 gr.
Enn má geta þess, að það er aðallega
stóri fiskurinn (afbragðs tegund), sem
neytt er í París, og þess vegna er það
jafnan hæzta verð, sem borgað er fyrir
þessa tegund, svo að segja eingöngu i
París, þar sem verðið annars i rauninni
er miklu lægra á almennum neyzlufiski.
Þegar svo nefndin gerði þá fyrirspurn