Ægir - 01.01.1917, Síða 24
ÆGIR
19
38. Jón Þorkelsson................. 18
39. Ágúst ólafsson................. 20
40. ólafur Benediktsson............ 13
41. Arngrímur L. S. Friðfinnsson. . 20
42. Sigdór Sigurðsson.............. 17
43. Aðalbjörn H. Kristjánsson .... 18
44. Einar Tómasson................. 20
45. Helgi Guðmundsson.............. 15
46. Kristinn Pálmason.............. 18
47. Jón Pálsson.................... 15
48. Jóhann Þorláksson.............. 20
49. Guðjón Guðmundsson............. 14
50. Helgi Kr. Helgason............. 17
Einnig voru haldnir nokkrir fyrirlestrar.
Prófessor Guðm. Hannesson hélt þrjá
fyrirlestra læknisfræðislegs efnis.
Alþm. Matthías ólafsson hélt einn fyrir-
lestur um »Menning sjómanna«.
Ritstjóri Sveinbjörli Egilson hélt einn
fyrirlestur um »Björgunartæki o. fl. sem
að sjómensku lýtur. Ól. Sveinsson
Sjómannaheimili Hjálpræðishersins í
Reykjavík vígt. Föstudaginn 19. janúar
var sjómannaheimilið og geslaheimilið í
hinu nýja húsi Hjálpræðishersins hér í
bænum vígt. Var mörgum bæjarmönn-
um hoðið að vera við vígsluna, og hófst
hún kl. 5 í samkomusal hússins, sem er
rúmgóður og viðkunnanlegur. — Yfir-
maður hersins hér, hr. Grauslund, ílutti
eftirfarandi ræðu:
»Leyfið mér fyrst og fremst í nafni
Hjálpræðishersins að bjóða ykkur á þess-
um degi velkomna í hið nýja hús okkar.
Það er að þakka velvilja hinnar islenzku
þjóðar við málefni okkar, næst guðs
hjálp, að við erum nú komin svo langt.
áleiðis, að við getum í dag vigt þann
hluta húss okkar, sem ætlaður er sjó-
manna- og gesta-heimilinu. Mér finst ég
ekki vera ókunnugur í ykkar hópi í dag,
því þau 2 ár og hálfu betur, sem ég hef
dvalið á Islandi, hef ég orðið aðnjót-
andi svo mikils góðvilja, að ég hef á-
stæðu til að líta á ykkur öll sem vini.
Það traust, sem íslendingar, og þá eink-
um borgarar Reykjavíkur, hafa sýnt okk-
ur, með því hvað eftir annað að leggja
fram samskotafé til þessa húss, hefir
verið okkur mikil hvöt. Við munum því
af fremsta megni reyna að sýna okkur
verðug þess trausts á þann hátt, að við
kappkostum í Krists anda að vera allra
þjónar, og þannig að líkjast honum, sem
ekki kom til þess að láta þjóna sér,
heldur til að vera sjálfur þjónn. — Við
stöndum í mikilli þakkarskuld til allra
þeirra, sem hafa stutt okkur, og það er
von min, að það fólk, sem á ókomnum
tímum á að starfa i þessu húsi, hafi
jafnan liinn rélta skilning á mannkær-
leika- og líknarstarfseminni, svo að gestir
þeir, sem hingað koma, megi finna hér
heimili, og þann kærleiksanda, sem
kveykt geti trúarinnar Ijós í hjörtum
þeirra, sem vonirnar hafa brugðist. Eg
bið þá, sem hér eru samun komnir, og
alla aðra, sem stutt hafa okkur, að taka
á móti innilegu þakklæti.
Húsið kostar okkur fullbúið 65 þús.
kr., og er þegar útborgað af þeirri upp-
hæð kr. 59,878.17. Nokkuð af timbrinu
úr gamla kastalanum höfum við getað
nolað; telur húsgerðarmeistarinn það 4
þús. kr. virði, og er þá verð hússins
komið upp í 69 þús. kr. En auk þessa
eru svo innanhússmunirnir, sem reikna
má á 5000 kr., og gömul skuld hvílir á,
sem er 4000 kr., svo að upphæðin verð-
ur alls um 74 þús. kr. Með gjöfum, sem
flestar eru fengnar hér á landi, hafa
safnast 16 þús. kr. Þar af eru um 1000
kr. frá Danmörku, og nýlega höfum við
fengið 1000 kr. frá íslendingum í Winni-
peg. Það er venjan við byggingarfyrir-
tæki okkar, að þriðji hluti alls kostnaðar
skuli fenginn með samskotagjöfum, til