Ægir - 01.01.1917, Blaðsíða 25
20
ÆGIR
þess að árlegu útgjöldin verði ekki of
þung að bera. Yið höfum nú tæplega
fengið þetta enn sem komið er hér, en
ef til vill koma enn gjafir frá einhverj-
um, og er þá gott rúm fyrir þær. í hús-
inu eru alls 3 fundarsalir, 1 húð og
vinnustofa, 2 skrifstofur, 1 þriggja her-
bergja íbúð með eldhúsi, og svo sjó-
manna- og gestaheimilið, og telst til þess
21 herbergi og eldhús. Vegna húsnæðis-
leysisins hér í bænum nú sem stendur
höfum við þó orðið að taka nokkur
svefnherbergi frá til íbúðar fyrir fjöl-
skyldur. Nú höfum við í notkun 12
svefnherbergi með 23 rúmum, en þegar
öll svefnherbergin koma í notkun, höf-
um við 35—40 rúm. Húsið er í elds-
voðaábyrgð fyrir kr. 71,164.00, en er virt
á kr. 87,155.00«.
Þegar yfirmaður hersins hafði lokið
máli sínu, tók til máls séra Bjarni Jóns-
son dómkirkjuprestur og síðan K. Zim-
sen borgarstjóri. Þökkuðu þeir hernum
og foringja hans fyrir starfsemina að
húsbyggingunni, lýstu þörf bæjarins fyrir
slíka stofnun og óskuðu henni góðs
gengis. Að þvi búnu var gestunum sýnl
sjómannaheimilið. Leist öllum vel á það
og þótti fyrirkomulagið gott. Þar eru
lestrarstofur tvær, en svefnherbergin eru
sum ætluð einum manni, önnur tveim-
ur og enn önnur fleirum, og fer þá auð-
vitað verðið eftir því. Ofn er i hverju
svefnherbergi.
Þá er svo langt komið, að sjómanna-
heimili er stofnað á landinu og geta þeir
bezt dæmt um hvað slík stofnun segir,
sem hafa notið góðs af sjómannaheim-
ilum í framandi löndum, langt frá sín-
um. Slíkar stofnanir eru ætlaðar öllum
farmönnum, án manngreinarálits, hverr-
ar þjóðar sem þeir eru; og margur hefir
þar orðið fyrir þeim áhrifum, sem breytti
lífi hans til hins betra.
Eins og fyr er skýrt frá, eru lestrar-
stofur á heimilinu; en eins og búast má
við, þá mun enn lítið af bókum og
blöðum, en slikt má ekki vanta, en von-
andi verður hugsað um það og ættu
bæjarbúar og aðrir landsmenn að gefa
heimilinu blöð og bækur og senda þang-
að timarit þau, er út eru gefin.
Hér hefir verið stór þörf á lestrarstofu
fyrir sjómenn í mörg ár, nú er hún
komin. Sýnið nú að starf hr. Grauslunds
sé metið, og hjálpið honum við starfið
eftir megni. Tíminn mun sýna, að hér
er þarft spor stigið og sjómannastéttin
ætti öll að vera þakklát dugnaðarmann-
inum, sem barðist fyrir þessu og kom
því í framkvæmd á máske þeim örðug-
ustu tímum, sem menn þekkja hér.
Gerið hr. Grauslund létt það, sem næst
kemur, það, að taka á móti gestum, með
siðprýði og góðri háttsemi, þegar þér
gistið þar eða dveljið, það er lika viður-
kenning, og munið eftir að bera virðingu
fyrir heimilinu.
Brezku samningarnir. Nú hafa fjórir
menn verið valdir til þess, ásamt fulltrúa
íslenzku stjórnarinnar i Lundúnum, Birni
Sigurðssyni, að semja að nýju um verð-
lag á íslenzkum afurðum samkv. brezku
samningunum, því það verðlag, sem áð-
ur var um samið, stóð að eins til ára-
móta. Þessir 4 menn eru: Rikhard Thors
framkvæmdasljóri, sem nú er staddur í
Lundúnum, Carl Pi'oppé kaupmaður,
Pétur A. ólafsson konsúll og Páll Stef-
ánsson umboðssali, og fóru þrír hinir
síðastnefndu áleiðis héðan til Englands
með »íslandi«. Ekki hafa þeir þó um-
boð til þess að gera út um verðlagið,
og verður það ekki gert fyr en þeir koma
hingað aftur.
Prfcntsmiðjau Guteuberg.