Ægir - 01.04.1917, Blaðsíða 8
56
ÆGÍR
„Lag,arfoss“.
Laugardagsmorgun hinn 19. maí ld. 11
f. h. lagðist hið þriðja skip Eimskipafé-
lagsins »Lagarfoss« að hafnarbryggjunni.
»Earl Hereford« botnvörpuskip skipstjóra
Halldói-s Þorsteinssonar fór á móti skip-
inu og flutti hann þá borgara bæjarins,
sem stjórn Eimskipafélagsins hafði boð-
ið til þess að fagna því. Voru það ráð-
herrarnir 2, bankastjórar, kaupmenn,
blaðamenn o. 11. Lúðraflokkurinn »Harpa«
skemti mönnum á leiðinni upp undir
Akranes. Rar var »Lagarfoss« fyrir og
lagðist »Earl Hereford« við hlið hans og
hleypti gestum Eimskipafélagsstjórnarinn-
ar upp í hann. Ileilsuðu menn skipstjóra
hr. Ingvari Þorsteinssyni og dreifðu sér
svo til þess að skoða skipið meðan á
siglingu stóð til hafnarinnar.
Skipið er í alla staði hið mvndarleg-
asta, sterklegt að sjá fyrir ofan sjó og
vissa fyrir því að það sem sjórinn hylur
sé einnig traust er sú, að botninn allur
er nýr, hver einasta plata; fór sú aðgerð
fram i fyrra (ágúst 1916) og auk þess er
Donkeykeiill nýr, látinn i sldpið 1915.
Þar eð þetta sldp er ætlað að eins til
vörullutninga eru farrými lítil, að eins
fyrir 14—16 manns.
Skip þetta hét áður »Profit« og var
um 6 ái'a skeið i förum við Kínastrend-
ur aðallega milli Bankok og Singapore
og sést á öllu, að vel hefir verið farið
með það. Á þilfari er mjög rúmgott
og skýlið í kringum Promenadedekkið
munu margir, er með skipinu ferðast,
blessa.
Stærð skipsins og ýms mál (í fetum).
»Profit«, sem nú heitir »Lagarfoss« er
smíðaður úr stáli á Nylands skipasmíða-
stöð í Kristianía árið 1904, eftir reglum
Norsk Veritas’ flokki f 1. A. 1. Lengd
225', breidd 33' 7", dýpt 19' 6". Ristir með
1565 tonnum 15'6", ristir með 1295 tonn-
um 14', ristir tómt 6' 7". Brutto tonnatal
1126 tons, netto 715 tons, burðarmagn
hér um bil 1565, hraði 10 mílur. Rúm-
mál framlestar. 48230 kub. fet., rúmmál
afturlestar 24620 kub. fet. Kjölfestukassar
rúma alls (af sjó) 264 tons, kolaforða-
rúm rúma alls 198,7 tons.
Vélin. Hún er einnig smiðuð á Nj'-
lands skipasmíðastöð, og er af fyrsta
flokki eftir reglum N. V.; er það þri-
þensluvél = Tregangsexpansions maskine
með yfirborðsþétii.
Þvermál bulluhólka er 16,5" x 27" X
44", Hestaöfl um 700 (ind); gufuketill-
inn er að þvermáli 14' 6" og 10' 6"
langur.
»Ceres« er fyrir var veilt frá biyggjunni
svo »Lagarfoss« gæti komist þar að.
ótölulegur grúi fólks kom fram að höfn-
inni til þess að sjá hið nýja skip og fagna
því. En er það hafði slegið landfestum,
gekk fram Sveinn Björnsson, formaður
Eimskipafélagsins, og hélt ræðu þessa:
Það var dapurt yfir okkur flestum
skammdegisdagana í vetur þegar við frétt-
um að við hefðum mist »Goðafoss«. Hug-
ur margra íslendinga hvarf þá að Straum-
nesi, og þangað voru sendar margar hug-
heilar óskir um að skipinu yrði bjargað.
Þvi miður brugðust þær vonir og óskir.
En sjaldan hafa kjarnmeiri orð hljóm-
að um landið þegar mótlæti hefir borið
okkur að höndum, heldur en einmitt þá.
Þeir vantrúuðustu hafa hlotið að finna
til þess þá, að stofnun Eimsldpafélagsins
var engin rótlaus'augnabliksvíma, heldur
lá á bak við alvarlegur, staðfastur vilji
allrar þjóðarinnar, vilji, sem ekkert óhapp
eða mótlæti vinnur bug á.
»Ekki skal gráta Björn bónda heldur
safna liði«. Þessi hreystiorð miðalda-kven-
körungsins, er lýsa sem leiftur um nótt